132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Aðbúnaður hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

236. mál
[12:03]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Frumvarp þetta er lagt fram í því skyni að tryggja fulla innleiðingu á tilskipun um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma en eins og kunnugt er var meginefni hennar innleitt með lögum á árinu 2003. Þá var vinnutími lækna í starfsnámi undanskilinn gildissviði vinnuverndarlaganna en með frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði laganna um vinnutíma starfsmanna gildi einnig um þann hóp.

Efni frumvarpsins mun hafa áhrif á vinnuskipulag innan stærri sjúkrahúsanna og því þótti ástæða til að innleiða regluna um vikulegan hámarksvinnutíma í þrepum fram til miðs árs 2009. Sömu reglur munu þó gilda um viðmiðunartímabilið og um aðrar starfsgreinar sem vinnuverndarlögin gilda um.

Vikulegur hámarksvinnutími lækna í starfsnámi verður þá 58 klukkustundir að meðaltali á fjögurra mánaða tímabili fram á mitt ár 2007 en 56 klukkustundir fram að miðju ári 2009. Að öðru leyti munu ákvæði laganna um vinnutíma taka gildi þegar frumvarpið verður að lögum.

Enn fremur er gert ráð fyrir að vinnuveitandi hafi samráð við fulltrúa starfsmanna með góðum fyrirvara með það í huga að ná samkomulagi, þar sem því verður viðkomið, um tilhögun vinnutíma á aðlögunartímabilinu. Hlutaðeigandi samtökum aðila vinnumarkaðarins er jafnframt heimilt að gera með sér samkomulag um tilhögun lækna í starfsnámi á sama tímabili.

Skilgreining á hugtakinu læknir í starfsnámi liggur fyrir. Þar er átt við læknakandídata sem hafa lokið læknaprófi en eru ekki komnir með lækningaleyfi og starfa í kandídatsstöðum sem eru viðurkenndar til öflunar lækningaleyfis. Enn fremur er átt við lækna sem starfa í stöðum sem auglýstar eru sérstaklega sem námsstöður vegna sérnáms og uppfylla skilyrði reglugerðar um veitingu lækningaleyfa og sérfræðingsleyfa.

Frumvarpi þessu er jafnframt ætlað að renna styrkari stoðum undir þær reglur sem þegar höfðu verið settar með heimild í lögunum fyrir gildistöku laga nr. 68/2003. Þá var félagsmálaráðherra falið að setja reglugerð um nánari framkvæmd laganna að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins en áður hafði stjórn stofnunarinnar sett reglu sem ráðherra síðan staðfesti. Nokkur óvissa hefur því ríkt um gildi framangreindra reglugerða. Þykir því ástæða til að taka af allan vafa um að þær haldi gildi sínu þar til nýjar hafa verið settar.

Hæstv. forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og félagsmálanefndar.