132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Ferðasjóður íþróttafélaga.

24. mál
[16:06]
Hlusta

Guðjón Hjörleifsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég mun fylgja þessari tillögu eftir og vonandi gengur hún alla leið því að það er mjög gott bakland fyrir mig að geta verið hérna með ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins þannig að þetta er komið á stefnu hjá okkur opinberlega. Ég mun því fylgja henni eftir og ræða við fulltrúa í menntamálanefnd og vonandi ljúkum við þessu máli á þessu þingi.