132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Ferðasjóður íþróttafélaga.

24. mál
[16:10]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sem flutningsmaður hyggst ég auðvitað að fylgja þessari tillögu til enda. Ég vona svo sannarlega að við náum að klára þetta mál í vetur. Það hefur ekki tekist hingað til. Það er vitað mál að við reyndum mikið að ná þessu máli í gegn, þ.e. að útvega fjármagn. Ég vonast svo sannarlega til að það takist. Hv. framsögumaður Hjálmar Árnason fór vel yfir þessi rök í andsvörum áðan og óþarfi er að endurtaka þau. En við verðum að horfa til framtíðar og vona að við náum þessu með hjálp góðra manna.