132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Kostir og gallar færeyska fiskveiðistjórnarkerfisins.

27. mál
[17:10]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem upp til að mæla með því að þessi tillaga fái framgang og auðvitað mun ég reyna að stuðla að því í sjávarútvegsnefndinni þar sem ég á sæti. Það er auðvitað full ástæða fyrir okkur að skoða aðrar leiðir í stjórn fiskveiða en þær sem við höfum fylgt hér. Okkur hefur ekki gengið það vel í stjórn fiskstofnanna að við getum ekki sótt þekkingu til annarra og skoðað hvernig þeir hafa unnið að sínum málum.

Hér höfum við staðið í endalausum deilum um stjórn fiskveiða sem hafa því miður skilað afskaplega litlu vegna þess að þar hafa menn alltaf blandað saman deilum um eignarhald á auðlindum og deilum um stjórn fiskveiða, þessu þyrftu menn að geta haldið aðgreindu. En það hefur ekki verið auðvelt að greina þetta tvennt að vegna þess að þeir sem hafa fylgt þessu kerfi fastast fram hafa alltaf vafið þessu saman, eignarhaldinu og stjórn fiskveiða. Þeir hafa talað um kvótakerfið, og jafnvel flutt það út til annarra þjóða, með þeim hætti að þeir sem á hlusta fá ekki betur skilið en að eignarhald fiskstofnanna sé aðalatriðið við stjórn fiskveiða, að það verði að vera þannig að útgerðarmenn eigi veiðiréttinn og geti keypt hann og selt að vild.

En auðvitað er þetta ekki þannig. Aflamarkskerfið getur gengið og það á auðvitað að ræða um það sem slíkt, en það er önnur umræða hvort eignarhald á veiðiréttindum eigi að vera í höndum útgerðarmanna eða þjóðarinnar eins og núna virðist stefna í að verði niðurstaðan.

Ég ætla ekki að fara yfir þessa tillögu eða hvað eigi að vera innifalið í þeirri skoðun sem hér er um að ræða. Aðalatriðið er að hún fari fram og við fáum betri innsýn í það hverju þetta skilar hjá frændum okkar í Færeyjum, en ég verð að taka undir það sem hefur komið fram um rannsóknir okkar og það að Hafrannsóknastofnunin hefur verið ríki í ríkinu. Hún hefur verið rannsóknastofnunin og hún hefur verið afskaplega iðin við að tala svolítið niður til þeirra sem hafa haft aðrar skoðanir á því hvernig ætti að líta á málin. Mér finnst að þar á bæ hafi menn talað um of með þeim hætti að þeir viti hlutina nákvæmlega. Auðvitað eru þau vísindi sem þar eru stunduð ekki nákvæm. Þar eru menn að ráða í hlutina og sérstaklega hefur það farið í taugarnar á mér að menn skuli tala eins og þeir viti nákvæmlega hvað fiskstofnarnir eru stórir við landið. Það þarf ekki nema meðalskynsemi til þess að sjá að þær mælingaraðferðir sem eru notaðar til þess að mæla fiskstofnana eru það ónákvæmar að ekki er hægt að taka mark á þeim með öðrum hætti en að líta á þær sem vísbendingar en ekki niðurstöður í tölum sem eigi svo að fara mjög nákvæmlega eftir.

Ég ætla að benda á eitt dæmi sem mér finnst sanna það sem ég er að segja. Loðnustofninn hefur verið nýttur undir vísindalegu eftirliti Hafrannsóknastofnunar alveg frá því að nýting á honum hófst. Hvað hefur svo orðið, ef við skoðum bara síðustu tíu árin, um nýtingu á þeim stofni? Þetta er uppsjávarstofn, þetta er fiskur sem lifir ekki nema í þrjú til fjögur ár í mesta lagi, í langflestum tilfellum þrjú ár, stundum fjögur skilst mér, sem sagt skammlífur stofn. Svona stofnar eru taldir vera mjög breytilegir í stærð af umhverfisástæðum og líka vegna þess hve hann er skammlífur. Þetta er einhver stabílasti veiðistofn sem við landið syndir samkvæmt tillögum Hafrannsóknastofnunar í gegnum tíðina. Hann er miklu stabílli til veiða en t.d. ýsustofninn og þorskstofninn samkvæmt tillögum Hafrannsóknastofnunar.

Munurinn á þessu er mjög mikill ef menn skoða skýrslurnar og þess vegna segi ég: Það er allt í lagi að menn reyni að mæla svona stofna og benda á hver niðurstaðan er en menn eiga ekki að halda því fram að tölurnar séu réttar. Það er af og frá að þær geti verið það. Munurinn er þannig, ef ég man þetta rétt, að á 10 ára tímabili hafa tölur um loðnustofninn verið frá 20,6 milljörðum upp í 25,2 milljarða einstaklinga, að einu ári undanskildu þar sem þetta var minna og að einu ári undanskildu þar sem þetta var meira. Nú er fiskifræðingur hér í salnum og hann gæti kannski leiðrétt mig ef ég er að fara með einhverja vitleysu. En mér finnst þetta benda til þess að stofninn sé með ólíkindum stabíll, að stærðarmunurinn á honum á tíu ára tímabili sé ekki meiri en þetta. Á sama tíma hafa t.d. botnfiskstofnarnir, eins og þorskur og ýsa, sveiflast meira. Á þessu tímabili er um tvöföldun, og rúmlega það, að ræða í þorskinum og þreföldun í ýsustofninum. En alltaf stendur loðnustofninn sig samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofnunar. Það er ekki meiri mismunur á stærð hans en þetta á þessu tímabili.

Mér finnst þetta í góðu lagi. Ég er ekkert að setja út á að þetta skuli vera niðurstöður Hafrannsóknastofnunar. En þá mega menn ekki, finnst mér, halda því fram að þetta séu einhverjar öruggar niðurstöður. Ég held að það geti ekki verið, mér finnst rökin fyrir því ekki vera til staðar. Ég held að menn mundu tala allt öðruvísi um fiskstofna ef þeir viðurkenndu að aðferðir til að meta stærð þeirra eru ónákvæmar og ég er ekkert að efast um að þær eru líka ónákvæmar hvað varðar aðra fiskstofna. En ég bendi á loðnuna vegna þess að mér finnst að þar hafi menn talað býsna djarft um það að þeir væru aldeilis með tól í höndunum til að mæla og bergmálsmælingarnar væru tiltölulega öruggar. En það er aldrei tekið mark á þeim þegar loðnan finnst ekki, þá mæla menn alltaf aftur.