132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Kostir og gallar færeyska fiskveiðistjórnarkerfisins.

27. mál
[17:56]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Tillagan sem við ræðum hér og ég er einn af flutningsmönnum að gengur út á það að gera góða og vandaða úttekt á færeyska fiskveiðistjórnarkerfinu, kostum þess og göllum, og hvaða lærdóm megi af því draga. Að sjálfsögðu mundu menn síðan nota þau gögn sem út úr því kæmu til að skoða hvort eftir nokkru sé þar að slægjast fyrir okkur Íslendinga því ekki hefur okkur miðað svo vel við stjórn fiskveiða og uppbyggingu þorskstofnsins hér við land undanfarin 20 ár eða svo síðan kvótakerfið var tekið upp. Að vissu leyti má segja að kvótakerfið hafi ekki verið einhlítt kvótakerfi fyrsta áratuginn eða tæplega það, sem það gilti, frá 1984 og fram undir 1990. En eftir það hefur verið um nánast hreint kvótakerfi að ræða og hirði ég þá ekki mikið um hvort menn tala um 10–11 þúsund tonn sem handfæraflotinn veiddi frá ári til árs og talin voru stundum að gætu verið stórkostlegur skekkjuvaldur í nýtingu okkar á þorskstofninum.

Þessi umræða hefur farið vítt og breitt varðandi fiskifræðina og stýringar okkar á veiðum hér við land á undanförnum árum og áratugum. Ég ætla aðeins að leggja inn í þá umræðu, hæstv. forseti. Það er líka held ég fullt tilefni til að við skoðum fiskveiðisögu okkar. Við vitum að í seinni heimsstyrjöldinni duttu þorskveiðar verulega niður hér við land vegna stríðsástandsins og þess að færri fiskiskip voru á veiðum á Íslandsmiðum á þeim árum en bæði fyrir og eftir stríð.

Ef við skoðum fiskveiðisöguna og tökum 60 ára tímabil, frá 1923 til 1982, þ.e. 60 ár á undan kvótakerfinu, var þorskaflinn, þrátt fyrir stríðið sem ég nefndi og þrátt fyrir að aflinn væri frekar lítill framan af, að meðaltali 367 þúsund tonn, frá 1923–1982. Ef við hins vegar skiptum þessu niður í 40 ára tímabil og tökum tímabilið frá 1943–1982 var þorskaflinn 383 þúsund tonn að meðaltali á því 40 ára tímabili. Ef við skoðum 20 ára tímabil fyrir daga kvótakerfisins var þorskaflinn 394 þúsund tonn að jafnaði ár hvert á því 20 ára tímabili.

Það er svolítið athyglisvert þegar maður ber þetta saman að það munar aðeins 27 þúsund tonnum að meðaltali hvort sem menn miða við 60 ára tímabil á síðustu öld eða 20 ára tímabil fyrir daga kvótakerfisins..

Ef við hins vegar kíkjum á hvað gerðist eftir 1984, þ.e. á áratugnum 1984–1993 í blönduðu kerfi kvóta og sóknar sem ég gat um, þá var meðaltalsaflinn af þorski 327 þúsund tonn á hverju ári og á tímabilinu á eftir, frá 1994–2003, þegar flestir voru komnir í kvóta var þorskaflinn aðeins 212 þúsund tonn. Eigum við að segja að það sé væntanlega hinn markverði árangur af stjórn veiða á þorskstofninum? Ja, þá er það árangur með öfugum formerkjum því hann er mjög neikvæður. Þess vegna er mjög eðlilegt að við þingmenn sem veltum þessum málum fyrir okkur og höfum áhuga á þeim mælumst til þess að gerð sé úttekt á annarri leið eða öðrum stjórnaraðferðum en við höfum beitt við fiskveiðar hér við land. Við vitum að Færeyingar hafa notað allt aðra aðferð, önnur vinnubrögð og allt aðrar forsendur þegar þeir ákveða sinn afla eins og komið hefur fram í þessum ræðustól í dag. Þess vegna held ég að eðlilegt sé að fram fari hlutlaus úttekt á því hvaða árangri þeir hafa náð við fiskveiðistjórn sína og hvort við megum og getum af henni lært.

Nú er það vissulega ekki svo, hæstv. forseti, að í Færeyjum sé eingöngu sóknarstýrt kerfi þó að það sé að mestu sóknarstýrt kerfi við botnfiskveiðarnar. Færeyingar nota kvótakerfi við uppsjávarveiðar, eins og við höfum reyndar gert og gerðum m.a. við síldveiðar áður en kvótakerfið margfræga var sett á 1984. Færeyingar nota kvóta á frystitogarana sem veiða að vísu megnið af botnfiskafla sínum utan færeyskrar lögsögu. Þeir hafa því reynslu bæði af veiðum í kvótakerfi og sóknarkerfi. En þeir töldu það mikla annmarka á framkvæmd kvótakerfisins í hinum blönduðu botnfiskveiðum flotans á heimamiðum að rétt væri að skoða það að hverfa frá því kerfi eftir að þeir höfðu stundað veiðar undir kvótakerfi í tvö, þrjú ár. Það varð niðurstaða þeirra að stýra sókninni, skipta flotanum upp í ákveðnar einingar og vera með stífar reglur um hversu mikið framsal mætti vera þar á milli á dögum milli útgerðarflokka og til hvers þyrfti að taka tillit og hvernig veiðistöðvunum væri skipt upp.

Síðan er ákaflega áhugavert að skoða hvernig Færeyingum hefur gengið efnahagslega og hvernig fólkinu í Færeyjum hefur gengið að lifa við þetta kerfi. Hvernig hefur atvinnuástandið verið og hvernig hafa byggðirnar farið út úr því? Ég held að mjög þarft sé að skoða það því við vitum að ástandið hér heima varðandi byggðirnar og byggðaþróunina í sjávarbyggðunum er mjög tilviljunarkennt. Við getum engan veginn séð fyrir hvert kvótarnir fara og hvernig þeir fara. Enginn í byggðinni getur verið viss um hvort atvinnurétturinn verður til staðar í næsta mánuði eða næsta ári vegna þess að við settum frjálsu verslunina af stað inn í kvótakerfið án þess að hafa þar beina stýringu á. Það sem ég held að hafi sett mjög margt á hliðina hér varðandi það hvort menn vildu sætta sig við einhvers konar stýringu með kvótakerfi eða ekki, var þegar þetta óhefta frelsi var sett á og menn sáu með engum hætti fyrir hvernig byggðin gæti þróast í landinu undir því kerfi.

Byggðastefna sem á að byggja á kvótakerfi með framseljanlegum kvótum sem menn vita aldrei hvar eru frá degi til dags er náttúrlega nánast út í vindinn.