Kostir og gallar færeyska fiskveiðistjórnarkerfisins.
Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það þó að Færeyingar komi til Íslands til að kanna hvað við höfum verið að gera hér mörg undanfarin ár og reyni jafnvel að draga einhvern lærdóm af því. Það er a.m.k. meiri manndómur í þeim en okkur því að hér hafa menn aldrei viljað ljá máls á því í sjávarútvegsnefnd til að mynda að hún fari í heimsókn til Færeyja til að kynna sér kerfið þar. Það hefur ekki fengist í gegn. Þeir eru eflaust að kynna sér hvaða reynslu við höfum af einhverjum þáttum í fiskveiðistjórn okkar á mörgum undanförnum árum. Það er ekki nema gott eitt um það að segja. Þeir eru að skoða þessi mál með miklu opnari hug en við. Við erum á þeirri einstefnu að menn taka engum rökum, vilja ekki hlusta á neitt og telja að þeir hafi rétt fyrir sér í einu og öllu og þetta er á margan hátt farið að minna ansi mikið á trúarbrögð.
Menn hreykja sér til að mynda oft af því að hingað séu alltaf að koma erlendir gestir til að kynna sér íslenska tilhögun á þessum málum og láta að því liggja að það sé vegna þess að útlendingum þyki allt hér svo ofboðslega frábært. En það er ekki nema hálfur sannleikurinn því að ég hef fylgst svolítið með þessum nefndum. Þetta eru nefndir sem fara á milli allra landa m.a. líka til Færeyja og eru einmitt að skoða reynslu þeirra með þeim hætti sem við höfum lagt til í dag að Alþingi geri. Síðan reyna menn að draga fram kosti og galla hjá hverjum og einum og draga til sín það sem hefur heppnast vel í hinum og þessum löndum.
Ég get til að mynda frætt formann sjávarútvegsnefndar á því að breski íhaldsflokkurinn fór í síðustu þingkosningum í Bretlandi fram með stefnu sem gekk út á að taka upp kerfi sem er mjög líkt færeyska kerfinu við veiðar í Norðursjó. Þeir höfðu komið til Íslands, Færeyja og annarra landa og þeim leist best á færeyska kerfið. Verið er að taka upp svipaða veiðistýringu að mér skilst í Kattegat og á fleiri stöðum. Það (Forseti hringir.) þarf því ekki að segja eitt eða neitt þó að Færeyingar séu að koma hingað.