132. löggjafarþing — 16. fundur,  7. nóv. 2005.

Póst- og fjarskiptastofnun.

267. mál
[16:20]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil líkt og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir fá aðeins skýrar fram frá hæstv. ráðherra hvað hér er á ferðinni því að eins og hér hefur komið fram lætur þetta mál ekki mikið yfir sér. Hér er um að ræða að verið er að færa mjög viðkvæman þátt, ef svo má að orði komast, yfir til ráðuneytisins, þ.e. í þeim skilningi að Póst- og fjarskiptastofnun sem hingað til hefur verið sjálfstæð stofnun sem hefur komist að niðurstöðu og niðurstöðum hennar hefur verið vísað beint til dómstóla. Það er í samræmi við það meginfyrirkomulag sem er víðast hvar í Evrópu. Mér finnst það þurfa betri skýringar við en að bréf í Landssímanum hafi verið seld. Þetta þarf miklu meiri skýringa við og kannski ekki síst í því ljósi að á komandi tíð er ekki ólíklegt að þetta ákvörðunarvald muni að miklu leyti snúast um fjölmiðla, hvernig fjölmiðlaefni verður dreift og hvernig aðgengi einstakra fjölmiðla verður að dreifikerfum og öðru slíku. Hér getur verið um mjög viðkvæmt mál að ræða og ætla ég nú ekki í þessu örstutta andsvari að endurtaka þær miklu deilur sem urðu hér um fjölmiðlamál í fyrra.

En ég velti mjög fyrir mér hvers vegna ráðist er með þessum hætti inn á jafnviðkvæmt svið á þessum tímapunkti og með jafnlitlum rökum og fylgja í greinargerð. Ég veit ekki betur en þetta hafi gengið ágætlega (Forseti hringir.) hingað til og mér finnst vanta skýringar á því hvers vegna verið er að breyta þessu.