Vandi rækjuiðnaðarins.
Frú forseti. Það var nú sérstök þörf á því að taka þetta fram áður en þessi ræða verður flutt sem hér verður flutt.
Það er ekki vanþörf á því að taka til umræðu hér gríðarlegan vanda rækjuiðnaðarins. Sá vandi er vissulega að hluta til sérstakur en hann er að stærstum hluta almenns eðlis. Hann er hluti af hinum gríðarlega vanda sem allt hið almenna atvinnulíf, almennar útflutnings- og samkeppnisgreinar búa við vegna ruðningsáhrifa stóriðjustefnunnar, vegna ofurgengis á krónunni og þenslu og verðbólguskrúfunnar sem hér er í gangi.
Ríkisstjórnin er einfaldlega úti að aka í þessu máli, algerlega úti að aka. Það er dapurlegt að það eina sem henni dettur í hug er að skipa nefnd. Sjávarútvegsráðherra fyrrverandi skipaði nefnd um hágengi og fékk skýrslur í maí sl. Það hefur ekkert verið gert með þá skýrslu, ekki neitt. Það sem er þar lagt upp sem mögulegar aðgerðir, því er bara stungið ofan í skúffu.
Hvað gerir hæstv. samgönguráðherra á ferðamálaþingi um daginn? Skipar nefnd vegna hágengisvanda ferðaþjónustunnar. Hvað gerir sjávarútvegsráðherra núna? Skipar nefnd vegna vanda rækjuiðnaðarins. Ætli það verði þá ekki niðurstaðan að rækjuiðnaðurinn dó í nefnd, dó í nefnd hjá ríkisstjórninni?
Það er ekki nóg að skipa nefndir. Það þarf þá í fyrsta lagi að fá einhverjar tillögur út úr því nefndarstarfi og gera eitthvað með þær tillögur ef það á að vera eitthvert gagn að þessu. Og auðvitað er þetta með endemum og maður er farinn að velta því fyrir sér: Ætlar ríkisstjórn Íslands að sturta hinu almenna atvinnulífi í landinu niður um klósettið í þágu áframhaldandi stóriðju- og skattalækkunartrúboðs? Eða á að gera eitthvað?
Þegar hágengisnefnd sjávarútvegsráðherra skilar í maí er gengisvísitalan 115. Það stendur í þeirri skýrslu að það verði erfitt fyrir sjávarútveginn að búa við það ástand ef gengi krónunnar fari ekki fljótlega að gefa eftir. Hvað hefur gerst síðan? Gengisvísitalan hefur farið úr 115 niður í 100. Gengi krónunnar hefur styrkst um 15 punkta þarna. Og hafi þetta verið erfitt í vor með gengisvísitölu 115 og þáverandi sjávarútvegsráðherra taldi ástæðu til að skipa nefnd, þá held ég að núverandi ætti að skipa svona átta nefndir.