Stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Það stendur í frumvarpsgreininni að að fimm árum loknum skuli skoðuð reynslan af þessum veiðum. En hins vegar, eins og ég sagði þegar ég mælti fyrir málinu, er það svo sem ekki heilög tala, fimm ár. Við bendum hins vegar á að þetta væru bráðabirgðaákvæði við núgildandi lög. Ég held að ég muni það rétt, að það séu 37 bráðabirgðaákvæði í lögunum um stjórn fiskveiða. Þetta gæti því orðið bráðabirgðaákvæði númer 38. Það sýnir hvers konar löggjöf þetta er, hvernig hún hefur verið unnin á undanförnum árum. (Gripið fram í.) Já, vonandi, hv. þingmaður.
Ef ég ætti að slá á hvað svona bátar gætu veitt þá fer það náttúrulega í fyrsta lagi eftir fjölda þeirra. Þeir hafa ekki þá heimild að geta fjölgað rúllum upp í sex og sjö rúllur eins og var á handfærabátunum sem voru kvótasettir í fyrra, heldur hafa þeir ákveðna takmörkun. Hvað voru þeir bátar margir? Voru þeir ekki 300, handfærabátarnir? Ég man ekki alveg þá tölu en mig minnir það. Þeir voru að veiða um 10–11 þús. tonn á ári, hv. þingmaður, með upp í sex og sjö rúllur á bát. Það veiddi flotinn að vísu á mjög takmörkuðum sóknardögum. En við megum ekki gleyma því að þetta voru mjög kraftmiklir bátar. Ég held að við mundum ekki stefna í neina stórkostlega tölu, a.m.k. ekki til að byrja með, og 5 þús. tonn held ég að væri eitthvað sem við gætum skotið á. (Forseti hringir.)