132. löggjafarþing — 18. fundur,  9. nóv. 2005.

Stofnanir fyrir aldraða.

111. mál
[19:19]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Fyrir ári, þann 13. október í fyrra, ræddi ég málefni yngri alzheimersjúklinga við hæstv. ráðherra og þá sagði hann að hann ætlaði að setja vinnuhóp í málið. Nú kalla ég eftir því hvað vinnuhópur hæstv. ráðherra hefur gert í málefnum þessa hóps því að það er engin sérhæfð þjónusta til fyrir yngri alzheimersjúklinga. Þó að 87 þeirra séu inni á hjúkrunarheimilum eru þessi hjúkrunarheimili ekki ætluð yngra fólki en 67 ára samkvæmt lögum og nú er orðið mjög erfitt fyrir þessa sjúklinga að komast inn. Þeir nánast geta ekki sótt um að komast inn á hjúkrunarheimili. Aðstandendur ganga mjög nærri eigin heilsu við að sinna sínum yngri alzheimersjúklingum vegna þess að þeir eiga ekki heima innan um hina öldruðu fyrir utan það að þeir hafa ekki aðgang að þessum hjúkrunarheimilum.

Því kalla ég eftir svari frá hæstv. ráðherra um hvað vinnuhópurinn sem hann (Forseti hringir.) kynnti fyrir nákvæmlega ári síðan hefur verið að gera.