132. löggjafarþing — 18. fundur,  9. nóv. 2005.

Byggðakvóti fyrir Bíldudal.

229. mál
[20:10]
Hlusta

sjávarútvegsráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Eins og vænta mátti fór hv. þingmaður ekki alveg troðnar slóðir í þessari fyrirspurn því að hann spurði fyrst og svaraði svo sjálfur. Hins vegar er það þannig að svar hv. þingmanns við fyrirspurninni sem hann lagði fyrir mig er ekki alveg í samræmi við svarið sem ég hyggst nú veita.

Virðulegi forseti. Með reglugerð nr. 722 sem gefin var út 4. ágúst á þessu ári var sú ákvörðun tekin að úthluta 4.000 þorskígildislestum á þessu fiskveiðiári til stuðnings byggðarlögum á grundvelli heimildar í 2. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða. Í áðurgreindri reglugerð er jafnframt kveðið á um hvaða forsendur skulu lagðar til grundvallar við skiptingu heildarmagnsins milli einstakra byggðarlaga og varð niðurstaðan sú að 140 þorskígildislestir koma í hlut Bíldudals. Var sveitarstjórn Vesturbyggðar í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 722/2005 gefinn kostur á því að gera tillögur um hvernig skipta bæri því magni sem í hlut Bíldudals kom milli einstakra fiskiskipa og hvaða skilyrðum slík úthlutun skyldi bundin.

Með bréfi, dagsettu 27. október 2007, sem barst ráðuneytinu nokkru síðar gerði sveitarstjórn Vesturbyggðar síðan tillögur til ráðuneytisins um þessi atriði og miðast tillögur sveitarstjórnar fyrst og fremst við það að byggðakvótinn verði unninn á Bíldudal og þeir sem úthlutun fái leggi sama magn á móti til vinnslu þar. Með þessu er ljóst að þessi úthlutun byggðakvóta leiðir til þess að allt að 280 lestum verði landað á Bíldudal til vinnu umfram það sem ella hefði verið.

Viðbrögð ráðuneytisins voru jákvæð. Það var óskað eftir frekari upplýsingum til þess að hægt væri að vinna málið til loka. Þeirra svara er beðið. Ég á von á því að þau svör berist fljótlega af því að hér var ekki um veigamikla hluti að ræða. Þegar þær upplýsingar liggja fyrir verður ekki beðið boðanna í sjávarútvegsráðuneytinu og úthlutunin mun fara fram.

Ég vil hins vegar taka það jafnframt fram að það er líka gert ráð fyrir því að á grundvelli laga komi í hlut Bíldudals væntanlega 50 tonn frá Byggðastofnun og ef sömu reglur verða látnar gilda um þau þá er hér um að ræða byggðakvóta sem leiðir til þess að 100 tonnum til viðbótar verður landað á Bíldudal til vinnu umfram það sem ella hefði verið. En ég tel að með þessu sé því verið að leggja töluvert af mörkunum til þess að koma af stað að nýju atvinnulífinu á Bíldudal. Hins vegar er það misskilningur hjá hv. þingmanni að það hafi einungis verið um þetta að ræða sem þyrfti til að atvinnulífið færi í gang að nýju. Það kom líka fram á þessum fundum sem hv. þingmaður sat ásamt mér og fleiri þingmönnum Norðvesturkjördæmis að enn fremur þyrfti að teysta fjárhagslegan grundvöll þeirra fyrirtækja sem eru til staðar á Bíldudal og vilja hefja þar atvinnustarfsemi að nýju. Sú fjárhagslega fyrirgreiðsla hefur ekki enn þá fengist. Þarna er verið að tala um bæði lán og hlutafé sem ekki er í sjálfu sér á hendi sjávarútvegsráðuneytisins að veita. Hins vegar er það ábyggilega rétt sem ég hygg að hv. þingmaður hafi m.a. verið að víkja að, að slík úthlutun byggðakvóta, bæði sem sjávarútvegsráðuneytið hefur forræði yfir og eins það sem Byggðastofnun hefur tök á, sem framkvæmd er með þeim hætti sem sveitarstjórnin í Vesturbyggð er að leggja til muni verða til þess að auðvelda mönnum sem núna vilja standa fyrir atvinnurekstri á Bíldudal að leita eftir fjárhagslegri fyrirgreiðslu. Ég vænti þess að þegar þessi ákvörðun liggur fyrir, og raunar þegar það liggur fyrir hér í svari mínu á Alþingi að það verður gert jafnskjótt og nægjanlegar forsendur eða nægjanlegar upplýsingar liggja fyrir, sem ég geri ráð fyrir að sé skammt undan, þá verði hægt að einhenda sér í það af meiri krafti og meiri atorku að afla þess fjármagns sem þarf til atvinnulífsins á Bíldudal.

En ég er sammála hv. þingmanni um að byggðakvótinn muni skipta mjög miklu máli. Þess vegna hef ég verið þeirrar skoðunar og er þeirrar skoðunar að við þurfum að hafa byggðakvóta til að bregðast við á stöðum sem þessum. Það skiptir mig í sjálfu sér engu máli þó hv. þingmaður sé að reyna að koma á mig einhverju pólitísku höggi með svona skæklatogi eins og hér áðan. Það á ekkert erindi í þessa umræðu hérna þar sem við erum fyrst og fremst að fjalla um málefni sem snúa að þessu byggðarlagi. Ég biðst hins vegar ekkert undan því að hv. þingmaður haldi áfram þessum vana sínum. Hann má gera það mín vegna. Aðalatriðið er hins vegar þetta: Það er verið að ljúka núna úthlutun á þessum byggðakvóta. Þess er væntanlega mjög skammt að bíða að hann líti dagsins ljós endanlega og þá mun það örugglega auka kraftinn í því að skapa forsendur fyrir fjárhagslega stöðu nýs fyrirtækis sem dugir til þess að koma atvinnulífinu í gang á nýjan leik við fiskvinnslu á Bíldudal.