132. löggjafarþing — 19. fundur,  10. nóv. 2005.

Gjaldfrjáls leikskóli.

26. mál
[14:32]
Hlusta

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga um gjaldfrjálsan leikskóla. Flutningsmenn ásamt mér eru aðrir þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, hv. þm. Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir og Hlynur Hallsson varaþingmaður, sem sat á þingi fyrr í haust þegar tillagan var lögð fram, og hv. þm. Ögmundur Jónasson.

Tillögugreinin er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra að skipa nefnd sem fái það verkefni að undirbúa og annast viðræður við sveitarfélögin um sameiginlegt átak þeirra og ríkisins um að gera leikskóladvöl gjaldfrjálsa í áföngum. Nefndin verði skipuð fulltrúum allra þingflokka og fulltrúa frá fjármálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti og Félagi leikskólakennara auk formanns sem félagsmálaráðherra skipi án tilnefningar.“

Tillaga þessi hefur verið flutt á tveimur síðustu þingum en varð í hvorugt skiptið útrædd. Tillögugreinin er endurflutt óbreytt, en efni greinargerðarinnar er uppfært í samræmi við þróun þessara mála hjá sveitarfélögunum.

Frá því að Vinstri hreyfingin – grænt framboð gerði baráttuna fyrir gjaldfrjálsum leikskóla að einu helsta baráttumáli sínu í aðdraganda síðustu alþingiskosninga hefur heilmikil þróun orðið í málefnum leikskóla. Þeim sveitarfélögum fjölgar ört sem þegar hafa tekið skref í átt að gjaldfrjálsum leikskóla og a.m.k. eitt dæmi er um sveitarfélag sem tekið hefur skrefið til fulls en það er Súðavíkurhreppur. Til að afla upplýsinga um stöðu þessara mála hjá einstökum sveitarfélögum ákvað þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að skrifa öllum sveitarstjórnum í landinu bréf nú í haust. Það fylgir með sem fylgiskjal I en þær upplýsingar sem borist höfðu þegar tillagan var lögð fram eru birtar sem fylgiskjal II. Rétt er að taka strax fram að þessar upplýsingar eru örugglega ekki tæmandi en gefa þó nokkuð skýra mynd af því á hvaða hreyfingu málin eru.

Ef við lítum aðeins í upplýsingar sem settar eru fram í fylgiskjali II, á bls. 5 í greinargerð tillögunnar, fengust upplýsingar frá allmörgum tugum sveitarfélaga. Ég hygg að náðst hafi samband við upp undir helming sveitarfélaga í landinu, eða að þau hafi að fyrra bragði brugðist vel við bréfi þingflokksins og svarað því. Reyndar hafa síðan komið upplýsingar frá fleiri sveitarfélögum en of seint til að ná inn í greinargerðina, þ.e. fylgiskjalið.

Þar er þá fyrst að nefna Reykjavíkurborg. Eins og menn þekkja væntanlega er gjaldfrjáls leikskóladvöl fyrir 5 ára börn þegar komin til framkvæmda í Reykjavík, sem nemur þremur klukkustundum fyrir hádegi auk þess sem mótuð hefur verið sú stefna að gera leikskólann gjaldfrjálsan í áföngum. Gjaldskrá fyrir leikskóla Reykjavíkur er birt sem síðasta fylgiskjal með tillögunni og nægir að vísa í hana.

Í Kópavogi og Hafnarfirði, öðru og þriðja stærsta sveitarfélagi landsins, er því miður enn ekki hreyfing á þessum málum. Þar er a.m.k. ekkert komið til framkvæmda en hins vegar hefur sveitarfélagið Álftanes tekið þessi mál til skoðunar og Kjósarhreppur, sem hefur samning við Reykjavíkurborg um vistun barna, fer eftir sömu gjaldskrá. Börn þar njóta því sambærilegrar gjaldfrjálsrar leikskóladvalar og komin er til framkvæmda í Reykjavík.

Í Akraneskaupstað, svo haldið sé nú vestur og norður um land, hafa þessi mál verið rædd. Þar hefur verið rætt um að gera leikskólagöngu gjaldfrjálsa í áföngum en valið að grípa til annarra forgangsaðgerða fyrst, t.d. að jafna kostnað foreldra sem nýta þjónustu dagforeldra annars vegar og leikskóla hins vegar.

Í Súðavíkurhreppi, eins og áður sagði, er leikskóladvöl að fullu gjaldfrjáls frá og með 1. september 2005, þ.e. í allt að 8 klst. á dag fyrir börn á leikskólaaldri. Þetta glæsilega frumkvæði og fordæmi sem Súðavíkurhreppur, smátt sjávarpláss og sveitarfélag, gefur er auðvitað til fyrirmyndar og eftirbreytni þótt ljóst sé að þetta er mikið átak fyrir sveitarfélagið. Í þessu felst ákveðin forgangsröðun verkefna eða tekjustofna en ég held að þeir hljóti að geta verið stoltir af því, íbúar í Súðavíkurhreppi.

Í Akureyrarkaupstað hafa hafist breytingar á gjaldskrá sem miða í átt að gjaldfrjálsum leikskóla. Þar var gjald fyrir gifta og sambúðarforeldra lækkað um 25% og af hálfu Akureyrarkaupstaðar er litið á þetta sem fyrsta skrefið í átt til þess að gera leikskólann gjaldfrjálsan.

Í Skútustaðahreppi er gjaldfrjáls dvöl er fyrir 5 ára börn í leikskóla.

Í Þingeyjarsveit hefur málið verið á dagskrá og þar er afstaða sveitarstjórnar sú að taka undir með fræðslunefnd hvað það varðar að æskilegt sé bjóða gjaldfrjálsan leikskóla fyrir a.m.k. síðasta árgang í leikskólanáminu. Samþykkt hefur verið að hefja gjaldfrjálsan leikskóla fyrir síðasta árgang frá og með 1. janúar 2006.

Í Fjarðabyggð fá börn á lokaári leikskóla gjaldfrjálsa dvöl í allt að 4 tíma á dag, frá kl. 8–12 fyrir hádegi, frá og með síðustu áramótum.

Í Rangárþingi ytra hafa menn tekið upp þann hátt að 5 ára börn fá 4 klukkustunda dvöl í leikskólum sveitarfélagsins gjaldfrítt.

Hér eru sem sagt nefnd til sögunnar tíu sveitarfélög af um hundrað þegar þetta var tekið saman en þeim er að fækka, eins og kunnugt er, og fara sennilega niður fyrir 90 á árinu 2006. Málið er því komið á dagskrá og komið af stað hjá þó nokkrum fjölda sveitarfélaga í landinu. Það er enginn vafi á því að sá bolti á eftir að vefja hratt upp á sig.

Félagsmálanefnd hefur haft efni tillögunnar til skoðunar undanfarna tvo vetur og í umsögnum sem nefndinni bárust um málið var yfirleitt tekið vel í meginefni tillögunnar. Eðlilega lögðu umsagnaraðilar á það áherslu að sveitarfélögin þyrftu að fá fullnægjandi tekjustofna til að takast á við verkefnið. Sú hefur að sjálfsögðu alltaf verið ætlun flutningsmanna. Í þessu baráttumáli flokks okkar hefur alltaf verið gengið út frá því að samstarf ríkis og sveitarfélaga þyrfti, ekki síst upp á tekjuhliðina. Þessa sjá menn glöggt stað í fylgiskjölum og greinargerð með tillögunni frá byrjun.

Nokkuð er um liðið síðan leikskólinn var viðurkenndur sem fyrsta skólastigið og starfsheitið leikskólakennari var tekið upp. Þegar af þeirri ástæðu leiðir að fá haldbær rök eru til þess að foreldrar greiði dýrum dómum fyrir skólahaldið sjálft, þ.e. leikskólamenntun, á fyrsta skólastiginu en hætti því svo skyndilega þegar börnin hafa náð grunnskólaaldri. Í leikskólastefnu Félags leikskólakennara er tiltekið að „leikskólinn eigi að vera hluti af menntakerfi samfélagsþjónustunnar eins og önnur skólastig og því skuli sveitarfélög vinna markvisst að því að börnum gefist kostur á 6 tíma leikskólagöngu á dag án endurgjalds“. Að baki liggur það mat leikskólakennara að minnst sex klukkustundir á dag þurfi til að unnt sé að framfylgja ákvæðum aðalnámskrár leikskóla þannig að sómi sé að og sinna öllum námssviðum hreyfingu, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúru og umhverfi, menningu og samfélagi, þannig að þetta sé samofið leik, daglegri umönnun og almennri lífsleikniþjálfun eins og vera ber. Allt eru þetta mikilvæg verkefni í leikskólastarfinu og þarf tíma og mannaskap til að sinna þeim.

Ekki er um það að deila, virðulegur forseti, að niðurfelling leikskólagjalda yrði gríðarleg kjarabót fyrir fjölskyldur með ung börn. Sú kjarabót mundi skila sér beint til fjölskyldna sem eru í mikilli þörf fyrir betri aðbúnað. Um það eru flestir sammála. Mánaðarleg leikskólagjöld eru nú víðast hvar um og yfir 30 þús. kr. fyrir níu tíma á dag. Fjölskyldur með tvö börn á leikskóla borga yfirleitt um 50 þús. kr. á mánuði því að ekki er óalgengt að systkinaafsláttur sé 30–35% með öðru systkini. Allmörg dæmi hef ég séð um fjölskyldur sem borga upp undir 60 þús. kr. í leikskólagjöld á mánuði fyrir þrjú börn, en systkinaafsláttur með þriðja barni er 75%. Slík fjölskylda þarf um 100 þús. kr. viðbótartekjur á mánuði til að standa straum af útgjöldunum, og það munar um minna.

Það er ljóst að þetta væri mikilvæg aðgerð til að bæta stöðu þessara fjölskyldna, til að jafna kjörin í landinu og kæmi sérstaklega til góða fjölskyldum sem lægstar hafa tekjurnar. Inn í þetta fléttast líka félagslegir þættir og menningarlegir og er sérstök ástæða til að vekja athygli á og huga að stöðu fjölskyldna nýrra Íslendinga í þessum efnum. Hafi einhver börn virkilega þörf fyrir að eiga þess kost og vera ekki hindruð í því á grundvelli bágs efnahags foreldranna, að sækja leikskóla og njóta þeirrar þjálfunar og fræðslu sem þar á að fara fram samkvæmt aðalnámskrár, sem er meira og minna eins og sniðin að því að þessi börn geti aðlagast íslensku samfélagi, þá eru það börn nýrra Íslendinga. En því miður er ærin ástæða til að ætla, og ég hygg að um það liggi meira að segja fyrir niðurstöður í könnunum, að ekki síst þessar fjölskyldur dragi það jafnvel við sig að senda börn sín á leikskóla af efnahagslegum ástæðum.

Það er ljóst, inn á það er komið í sérstökum kafla í greinargerðinni að tekjuhliðina á þessu máli þarf líka að taka föstum tökum. Kostnaður sveitarfélaganna vegna leikskóla nam um 11,8 milljörðum kr. á árinu 2004 en á móti komu tekjur vegna leikskólagjalda upp á 3,3 milljarða kr., eða rétt um 28%. Það er um þennan kostnað sem þetta snýst, að óbreyttum umsvifum í rekstri leikskólanna, en hann er að sjálfsögðu ekki sjálfgefinn. Það þarf líka að huga að því að með því að innleiða það fyrirkomulag að börn eigi rétt á tiltekinni gjaldfrjálsri leikskóladvöl má ætla að eftirspurnin aukist nokkuð. Í raun hlýtur markmiðið að vera að fullnægja þörfum þannig að fjölskyldur allra barna sem þess óska eigi kost á að senda börn sín á leikskóla og eigi þann rétt. Þannig þurfa auðvitað skyldur sveitarfélaganna annars vegar og réttindi íbúanna hins vegar að haldast í hendur. Gera þarf sveitarfélögunum kleift að takast á við verkefnið með fullnægjandi tekjustofnum.

Við höfum bent á þann möguleika í stefnumótun okkar á þessu sviði að annars vegar geti að sjálfsögðu komið beinir tekjustofnar sem mæti þeim kostnaði sem sveitarfélögin taka smátt og smátt á sig með niðurfellingu leikskólagjaldanna. En einnig gæti ríkið létt tilteknum verkefnum af sveitarfélögunum á móti, t.d. greiðslu húsaleigubóta. En það hefur einmitt verið okkar stefna að ríkið yfirtaki þann málaflokk og færi inn í skattkerfið þar sem hann yrði í samræmi við vaxtabætur þannig að stuðningur við bæði leigjendur og eigendur íbúðarhúsnæðis væri samræmdur.

Útgjöld sveitarfélaga vegna húsaleigubóta urðu nálægt 980 millj. kr. árið 2002, 1.280 millj. kr. árið 2003, 1.460 millj. kr. árið 2004 og stefna í að verða um 1.600 millj. kr. á yfirstandandi ári samkvæmt endurskoðaðri áætlun. Ef ríkið tæki að fullu á sig kostnað vegna húsaleigubóta stæðu því eftir nálægt 1.700 millj. kr. sem bæta þyrfti sveitarfélögunum þegar leikskólagjöld hefðu verið felld niður í heild, þ.e. af þeim 3 milljörðum kr. Það er að sjálfsögðu ekki á dagskrá að gera það í einum áfanga eða á einu ári heldur yrði um þróun að ræða. En það er enginn vafi á því í okkar huga að þangað ber að stefna.

Hver áfangi á leið til fulls gjaldfrelsis gæti þannig kostað á bilinu 600–900 millj. kr. í aukin rekstrarútgjöld — ekki 9.000 millj. eins og misritast hefur í greinargerð. Stærra er þetta verkefni ekki í raun og veru, ef grannt er skoðað. Það er enginn vafi á því að þarna er á ferðinni framfaramál, uppbygging og þróun í velferðarsamfélagi sem er löngu tímabær. Í raun er það forneskja að byggja á þeim aðskilnaði leikskólastigsins annars vegar og grunnskólastigsins hins vegar sem m.a. og ekki síst er undirstrikaður í gjaldtökunni á fyrra skólastiginu. Það er löngu tímabært að slá það af.

Að lokinni þessari umræðu, frú forseti, legg ég til að að málinu verði vísað til síðari umræðu og félagsmálanefndar.