132. löggjafarþing — 19. fundur,  10. nóv. 2005.

Vegagerð um Stórasand.

43. mál
[15:40]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er alveg rétt að Vegagerðin hefur haft uppi hugmyndir um styttingu nálægt Blönduósi. Hún hefur líka haft uppi hugmyndir um breytingu á veginum yfir Holtavörðuheiði og styttingu þar. Það eru fleiri styttingar á leiðinni sem Vegagerðin hefur gert ráð fyrir.

Ég hef ekki talað fyrir þessari styttingu sem þarna er um að ræða. Ég hef hins vegar bent á að það geti verið ástæða til að skoða það hvort breyta eigi þjóðvegi 1 þannig að hann liggi um hlaðið á öllum helstu þéttbýlisstöðum á Norðurlandi og með veggöngum í gegnum Tröllaskaga. Hv. þingmaður þarf því ekki að vera með neinar aðdróttanir að mér hvað þessa hluti varðar.

Mér finnst hins vegar að hér sé talað öðruvísi en forsvarsmenn þeirra sem komu í fjölmiðla og lýstu þessari framkvæmd töluðu í sumar. Það vekur auðvitað athygli mína vegna þess að það var alveg augljóst af orðum þeirra að þeir töldu að það þyrfti að fara í þessa framkvæmd og ætti að fara í hana innan þriggja ára, ef ég man rétt. Og til þess að sú framkvæmd komi að notum er alveg augljóst mál að það þarf að fara í verulega framkvæmdir aðrar sem viðkomandi talsmaður dró ekki neina dul á að þyrfti að gera. Um þetta þurfa menn auðvitað að tala hreinskilnislega þegar verið er að leggja til stórar og dýrar framkvæmdir og líka hvernig vegakerfið mun líta út í framtíðinni, að hverju menn stefna í því. Á það hefur vantað að menn hafi haft langtímaáætlanir í vegagerð þar sem menn hafa horft nokkra áratugi fram í tímann til að hjálpa sér við að taka ekki vitlausar ákvarðanir eins og hefur borið á á undanförnum árum.