132. löggjafarþing — 19. fundur,  10. nóv. 2005.

Vegagerð um Stórasand.

43. mál
[15:56]
Hlusta

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ekki nema von að hv. þm. Halldóri Blöndal þyki ræða mín út í hött, svo mjög sem tillöguflutningurinn allur hefur í umræðunni almennt verið talinn út í hött og fullkomlega ófullburða. Ég held að sem betur fer sé þessi framkvæmd öll slegin af, enda hafa menn ekki aðeins athugasemdir sem lúta að veðurfarinu heldur er við hana auðvitað fjölmargar athugasemdir að hafa: Hvernig Þingvöllur væri með þessum hætti leikinn. Hvernig veglagning yfir sunnanverða Arnarvatnsheiði mundi fara með þá náttúruperlu og þingmaðurinn getur ekki vikið sér undan því að vegarhugmynd hans á að liggja þar um. Að byggðir bæði á Norðvesturlandi og Vesturlandi yrðu einangraðar frá meginflutningsleiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hver yrði kostnaðurinn og væri ekki hægt að skoða fremur allan þann fjölda styttinga á leiðinni sem væri miklu hagkvæmari og nærtækari. Allt leggst þetta á eitt um að gera þessa hugmynd hv. þingmanns fullkomlega óraunhæfa.

Ég treysti því að hún muni einfaldlega fá þá umsögn í meðhöndlun samgöngunefndar og aldrei koma aftur til neinnar alvöruafgreiðslu í þinginu enda, eins og ég hef áður sagt, greinilegt á skipan salarins að hér er enginn áhugi á málinu. Það er lítil þátttaka í umræðunni og nær engir þingmenn mættir til að fylgjast með umræðunni og telja málið trúlega löngu sjálfdautt.