Forræði yfir rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um forræði yfir rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Ég hef reyndar talað fyrir henni áður. Ég flutti hana á síðasta þingi ásamt hv. þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Þá var tillagan líka send út til nokkurs fjölda umsagnaraðila og ég mun í ræðu minni gera grein fyrir niðurstöðum þeirra umsagna og kannski ástæðum þess að ég ákveð að flytja tillöguna aftur.
Tillagan gengur út á það Alþingi álykti að forræði rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma flytjist frá iðnaðarráðherra til umhverfisráðherra og að flokkun vatnsfalla og jarðhitasvæða samkvæmt henni verði lögð fyrir Alþingi til nánari ákvörðunar um verndun og nýtingu þeirra, þ.e. að grundvallaratriðið verði það að rammaáætlunin fái stjórnsýslulegt vægi og Alþingi staðfesti þá röðun sem starfshópar rammaáætlunarinnar komast að niðurstöðu um.
Rammaáætlunin hefur verið umdeild, því miður. Ég held að menn séu almennt svo sem sáttir við að hún sé gerð. En það hefur verið umdeilt á hvern hátt hún er nýtt. Gríðarlegur kostnaður fór í að gera fyrsta áfanga rammaáætlunar. Það var hátt yfir 500 millj. kr. sem hún kostaði á sínum tíma þegar ráðist var í gerð hennar og það var kostnaður sem tók til tveggja eða þriggja ára. Gríðarlega mikil vinna var lögð í hana. Ég held ég muni það rétt að um 70 manns hafi komið að vinnunni. Reyndar var svo sem kannski aðeins fagleg slagsíða sem gagnrýnd var í þeim efnum í starfshópunum. Ég held að í verkefnisstjórninni hafi einungis verið einn líffræðingur á móti fimm verkfræðingum. Það var svo sem ýmislegt gagnrýnt í þeim efnum.
Í nóvember 2003 lágu fyrir niðurstöður fyrsta áfangans og hæstv. iðnaðarráðherra lagði fram skýrslu á Alþingi um þær niðurstöður og þær voru afar athyglisverðar að mörgu leyti. Hér fór fram talsverð umræða um þessar niðurstöður. En það var alveg ljóst í þeirri umræðu að niðurstöðurnar ætti ekki að nýta á þann hátt sem ég hefði talið eðlilegan. Iðnaðarráðherra taldi að þær mætti nýta sem grunn fyrir mat á frumáætlunum virkjana og að stjórnvöld gætu mögulega nýtt sér niðurstöðurnar sem grundvöll að stefnumörkun í orku- og náttúruverndarmálum. En í raun var ekkert sagt um þetta stjórnsýslulega gildi sem ég tel svo mikilvægt að verði kveðið á um afdráttarlaust.
Mér finnst því liggja í hlutarins eðli að iðnaðarráðherra ætli sér að taka ákvarðanir á grundvelli fyrirliggjandi vinnu og að stjórnvöld hafi alls ekki í hyggju að gefa þeirri flokkun sem fólgin er í niðurstöðum fyrsta áfangans neitt skuldbindandi vægi eða lagagildi og þykir mér það mjög miður. Í orði kveðnu láta hæstv. ráðherrar eins og rammaáætlunin hafi gildi. Þannig talaði hæstv. forsætisráðherra um rammaáætlunina í stefnuræðu sinni í fyrra haust í kaflanum um náttúruvernd. Sá kafli ræðunnar hljóðaði svo, með leyfi forseta:
„Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja náttúruvernd og málefni þjóðgarða og unnin landsáætlun um vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Haldið verður áfram vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma þar sem lögð er áhersla á að afla sem bestra upplýsinga um náttúrufar.“
Í umræðum um stefnuræðuna sagði svo hæstv. umhverfisráðherra um rammaáætlunina, með leyfi forseta:
„Afar mikilvægt er að ljúka rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma svo að heildarsýn fáist yfir alla helstu virkjanakosti í landinu og áhrif þeirra á umhverfið. Á þann hátt verða til grunnupplýsingar sem gera okkur fært að samræma vernd og nýtingu orkuauðlinda þjóðarinnar á sjálfbæran hátt í framtíðinni.“
Þarna kemur nú hæstv. umhverfisráðherra inn meginsjónarmiðum sínum í þessum málum, þ.e. að nýting og vernd eigi að geta farið saman. Hún hefur reyndar ekki fært okkur heim sanninn um það á hvern hátt hún sjái það gerast, hvort hún sjái það geta gerst án þeirra miklu átaka sem hafa verið undanfarin ár um nýtingu vatnsaflsins t.d. og náttúruverndarinnar hins vegar. En það alla vega kemur í ljós í ræðum þessara tveggja hæstv. ráðherra, forsætisráðherra og umhverfisráðherra, að þau hafa rammaáætlunina svona alveg á dagskrá, alla vega á spássíunni, og hún kemst inn í ræður þeirra.
En hvað hefur hæstv. iðnaðarráðherra sagt um áframhaldandi vinnu við rammaáætlun? Jú, hún hefur látið þess getið, bæði í þeirri skýrslu sem ég gat um áðan og einnig í ræðum, að búið sé að setja af stað vinnu við annan áfanga áætlunarinnar, sú vinna eigi að fara fram núna á þessu ári og kannski næstu þremur árum, eftir því sem hún hefur látið hafa eftir sér. En hún hefur jafnframt sagt að þeirri vinnu muni stýrt af fámennari verkefnisstjórn en þeirri sem vann fyrsta áfangann og að verkefnisstjórnin verði einungis skipuð fulltrúum frá iðnaðar- og umhverfisráðuneyti auk helstu hagsmunaaðila.
Þetta gagnrýni ég harðlega, virðulegi forseti. Þarna finnst mér strax að hæstv. iðnaðarráðherra sé búinn að gengisfella þá vinnu sem nú þegar hefur farið fram með því að hún ætlar ekki að skipa málum með sama hætti í síðari áfanga. Nú tel ég alveg einsýnt að ef taka á mark á þessari vinnu þá þarf að leggja jafnmikið í hana eins og lagt var í fyrsta áfanga þar sem starfshóparnir voru öflugir og mjög margir komu að málinu. Það skiptir verulegu máli að því verklagi sé haldið. En það á greinilega ekki að gera og mér finnst þetta vera til staðfestu um það að hæstv. iðnaðarráðherra hafi ekkert að gera með að hafa forræðið á þessari rammaáætlun. Mér finnst einsýnt í ljósi þess hvernig hún ætlar að véla með þessi mál núna í áframhaldinu að hæstv. umhverfisráðherra fái þau á sitt borð. Mér finnst það vera algjört lágmark að hæstv. ríkisstjórn segi okkur, láti okkur í té eða færi okkur heim sanninn um það að hún meini eitthvað með gerð rammaáætlunarinnar og að forræðið verði fært frá iðnaðarráðherra yfir til umhverfisráðherra.
Umsagnaraðilar um þessa tillögu frá síðasta þingi voru nokkuð margir og segja má að sjónarmið manna skiptist algerlega í tvö horn. Þannig má segja að allur náttúruverndargeirinn fylki sér um þessa tillögu og sé sammála henni í grundvallaratriðum á meðan orkufyrirtækin og stofnanir iðnaðarráðuneytisins setja sig upp á móti henni. Kemur það nokkrum á óvart, hæstv. forseti? Ekki mér. Auðvitað lýsir þetta engu öðru en því á hvern hátt sjónarmið skipast í þessum efnum. Menn skiptast algerlega í tvo flokka. Það er engin sátt i sjónmáli.
Ég tel að ef ná á einhverri sátt um niðurstöðu nýtingar annars vegar og verndar hins vegar þá verði það mögulegt eingöngu ef sú vinna verður höfð á forræði hæstv. umhverfisráðherra.
Nú verður auðvitað að taka það fram, og það veit alþjóð, að ég treysti svo sem umhverfisráðherrum misvel. Það fer mjög eftir því líka hvaða einstaklingur situr í embætti viðkomandi ráðherra í það og það skiptið. Ég vil samt segja að það er sama hvaða einstaklingur situr í embætti hæstv. umhverfisráðherra, ég mundi treysta viðkomandi betur sem málsvara umhverfisins til þess að leiða þessa vinnu til lykta heldur en hæstv. iðnaðarráðherra. Þar finnst mér rammaáætlunin vera fullkomlega „malplaseruð“ og mér finnst hæstv. iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir hafa sýnt það oftar en einu sinni svo um munar.
Læt ég hér máli mínu lokið og óska eftir því að tillögunni verði vísað áframhaldandi til síðari umr. með viðkomu í hv. umhverfisnefnd.