Ummæli forsætisráðherra um öryggis- og varnarmál.
Virðulegur forseti. Ég kveð mér hljóðs undir liðnum um störf þingsins vegna ummæla sem hæstv. forsætisráðherra lét falla á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins núna um helgina. Það var haft eftir forsætisráðherra og vitnað í ræðu hans í fjölmiðlum þar sem fram kom að mikill skoðanamunur væri í öryggis- og varnarmálum milli íslenskra stjórnvalda og áhrifamikilla afla í Bandaríkjunum. Svo sagði hæstv. forsætisráðherra í ræðu sinni, með leyfi forseta:
„Við munum aldrei neyða þá til að vera hér ef þeir vilja ekki vera hér [þ.e. Bandaríkjamenn og herinn]. Við munum heldur ekki biðja þá um að vera hér ef þeir vilja ekki vera hér,“ sagði forsætisráðherra.
Þegar ég sá þetta fór ég að hugsa um að þessi orðræða hljómaði eitthvað sérkennilega vegna þess að ég hélt að málið snerist ekki um það hvort Bandaríkjamenn vildu vera hér eða ekki, heldur hvort við teldum þörf á því að þeir væru hér eða ekki vegna okkar varnarhagsmuna.
Það sem vafðist líka fyrir mér þegar ég las þessi orð forsætisráðherra var hver skilaboðin væru, hvaða skilaboð væri verið að senda út í samfélagið. Óneitanlega voru þetta mjög ákveðin skilaboð en ekki að sama skapi ljóst hvað í þeim fólst. Voru skilaboðin þau að verið væri að búa þjóðina undir að samningar muni ekki takast við Bandaríkjamenn eða voru skilaboðin þau að niðurstaða þessara samninga muni verða á skjön við samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar?
Samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar var að hér ættu að vera fjórar orrustuþotur á landinu, það væri lágmarksviðbúnaðurinn. Ég dreg í efa að það sé endilega rétt en það skiptir ekki máli. Þetta var það samningsmarkmið sem ríkisstjórnin setti sér, þetta var hinn sýnilegi lágmarksviðbúnaður sem hér þyrfti að vera. Er verið að segja að ríkisstjórnin muni ekki ná þessu samningsmarkmiði sínu, að það hafi verið óraunsætt samningsmarkmið þegar lagt var af stað?