Ummæli forsætisráðherra um öryggis- og varnarmál.
Virðulegi forseti. Ég gladdist í hjarta mínu þegar ég hlustaði á hádegisfrétt Ríkisútvarpsins um helgina og heyrði þar bút úr ræðu hæstv. forsætisráðherra og síðan viðtalsbút við hann og annað sem eftir honum var haft því að það sem hæstv. forætisráðherra sagði var í raun og veru efnislega nákvæmlega það sama og ég talaði um fyrir einu og hálfu til tveimur árum. Þá viðraði ég einmitt hugmyndir um það að ef Bandaríkjamenn vildu ekki vera hér lengur yrði hreinlega svo að vera en þá ættum við að notfæra okkur stöðu okkar í NATO og leita eftir nánara samstarfi við aðrar bandalagsþjóðir, vinaþjóðir okkar, til að mynda Norðmenn, Dani, Þjóðverja, Breta. Það væri langeðlilegasti leikurinn í stöðunni eins og mál virtust vera að þróast. Ég hygg að þarna sé raunhæft að fara út í ákveðnar þreifingar því að við erum í NATO. Við erum ekki í hernaðarbandalagi við Bandaríkjamenn, við erum í NATO. Það er alveg augljóst að nágrannar okkar í Evrópu hljóta að hafa ákveðinna hagsmuna að gæta í Norður-Atlantshafi. Við erum jú eyja þar. Það mætti hugsa sér samvinnu við þá á ýmsum sviðum í varnarmálum því að við megum ekki gleyma því að þó að það sé friðvænlegt núna, akkúrat nú um stundir, getur skorist í odda milli þjóða. Við erum áfram á viðkvæmu svæði.
Það má hugsa sér að brotist gætu út átök norður af okkur, til að mynda á Svalbarðasvæðinu. Það má vel hugsa sér að Rússar muni enn á ný hugsa sér til hreyfings. Þar er stjórnmálaástandið enn mjög óstöðugt og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, virðulegur forseti, að vinaþjóðir okkar í austri, þ.e. í Evrópu, vilji ekki ígrunda það vandlega hvort ekki sé full ástæða fyrir þær að vera áfram í varnarbandalagi með okkur Íslendingum.
Enn og aftur, ég fagna yfirlýsingum forsætisráðherra.