132. löggjafarþing — 20. fundur,  14. nóv. 2005.

Ummæli forsætisráðherra um öryggis- og varnarmál.

[15:19]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Það er svolítið merkilegt að við séum að ræða þessi mál hér en gott og vel, menn geta notað þetta form til þess að hefja svona almenna utandagskrárumræðu. Það á að fara fram önnur slík hér síðar og eins og búið er að benda á á að fara fram umræða um utanríkismál í þessari viku.

En það er ekkert stórkostleg yfirlýsing sem við erum að ræða hérna. Auðvitað þarf tvo til þegar menn gera samninga og það kom einmitt fram í máli hæstv. forsætisráðherra á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. Ég skil ekki af hverju formaður Samfylkingarinnar, hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, gerir svona mikið veður út af því. Ég hefði frekar trúað hv. þingmanni til að spyrja út í yfirlýsinguna um það að ef varnarliðið færi þyrfti að skoða betur samstarfið við Evrópu. Það væri meira í takt við þá pólitík sem viðkomandi flokkur stendur fyrir. Þessi umræða kemur mér vissulega svolítið á óvart.

Hv. þingmaður sagði að formaður Framsóknarflokksins, hæstv. forsætisráðherra, hefði verið með ákveðin skilaboð en ekki ljós. Ákveðin skilaboð — en ekki ljós. Virðulegur forseti, það er mjög merkilegt að heyra þetta vegna þess að Samfylkingin er með afar óljósa stefnu varðandi varnarliðið. Sumir í Samfylkingunni vilja að varnarliðið fari sem fyrst, aðrir vilja byggja á varnarsamningnum áfram eins og Framsóknarflokkurinn hefur stutt. Það væri nær að Samfylkingin reyndi að upplýsa hvað hún vill í þessu máli. Vinstri grænir hafa svarað því og það gerðu þeir fyrir löngu, þeir vilja að herinn fari sem fyrst. En Samfylkingin situr á miðri girðingu og veit ekkert hvorum megin hún ætlar að detta.

Maður hlýtur að spyrja í tilefni af spurningu hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur: Hvað vill Samfylkingin? Á hvorn kantinn ætlar hún að detta af girðingunni?