Skólagjöld við opinbera háskóla.
Virðulegi forseti. Skólagjöld við ríkisrekna háskóla er mál sem iðulega er rætt hér. Ástæðan er ekki síst sú að við horfum upp á það að samkeppnisstaða skólanna er ekki jöfn og meðan svo er munu ríkisreknu skólarnir leita leiða til að geta innheimt meira fjármagn. Hins vegar verðum við að horfa á það að fjárframlög til háskólastigsins hafa aukist jafnt og þétt eða eins og kom fram hjá hæstv. menntamálaráðherra um 105% frá árinu 2000.
Í þessari umræðu er mikilvægt að fá nákvæman samanburð á íslenskum háskólum sem tekur til fjárveitinga á fjárlögum, tekna af skólagjöldum, tekna af rannsóknum og annarra tekna og framlaga. Þeir listar sem liggja fyrir virðast ekki birta allar þessar upplýsingar. Styrkir til að mynda frá atvinnulífinu eru mjög mismunandi milli skóla og kannski býður rekstrarformið upp á slíka mismunun. Ég legg mikla áherslu á að þessi skoðun fari fram nú við fjárlagagerð og hef ég vissu fyrir því að slík vinna sé í gangi.
Við framsóknarmenn höfum iðulega staðið fyrir jafnrétti til náms og á flokksþingi okkar fyrr á árinu var samþykkt eftirfarandi ályktun, með leyfi forseta:
„Allt grunnnám verði gjaldfrjálst í ríkisreknum háskólum. Mikilvægt er að tryggja að ríkisreknir háskólar sitji við sama borð og einkareknir háskólar. Leitað verði leiða til að greina fjárhagsvanda ríkisrekinna háskóla og finna leiðir til lausnar í samvinnu við þá. Lagt er til að sérstakur starfshópur Framsóknarflokksins taki til umfjöllunar stefnu flokksins varðandi ríkis- og einkarekna háskóla, greini fjárhagsvanda ríkisrekinna háskóla og þar með skólagjöld.“
Það eru ýmsar leiðir sem hægt er að fara og þarf að skoða alla fleti þeirra. Að mínu mati er nauðsynlegt að standa vörð um grunnnámið, að hver Íslendingur hafi það val að ná sér í háskólagráðu án himinhárra skólagjalda. Upptaka skólagjalda er ekki á dagskrá stjórnvalda en það er ekkert óeðlilegt við það þó að umræðan fari fram innan flokkanna enda hlýtur það að vera hluti af stefnumótun háskólastigsins til framtíðar að velta upp öllum hliðum málsins.