132. löggjafarþing — 21. fundur,  15. nóv. 2005.

Aðstoð við fórnarlömb náttúruhamfaranna í Pakistan.

[13:52]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ögmundi Jónassyni fyrir að taka þetta hér upp og þó svo við höfum möguleika á að ræða þetta frekar í dag við fjáraukalögin þá vona ég að þessi umræða verði til þess að vekja athygli okkar þingmanna allra á þeirri fjárupphæð sem lagt er til að fari til hjálparstarfs í Kasmír.

Þegar ákvörðun ríkisstjórnarinnar lá fyrir trúi ég því að umfang og afleiðingar þessa hörmulega atburðar og mikla jarðskjálfta hafi ekki legið ljósar fyrir þannig að á þeim tíma hafi hæstv. ríkisstjórn ekki áttað sig á því að þetta svæði er ekki eins og mörg önnur svæði á jörðinni, samanber Bandaríkin, þar sem velferðarkerfi er til staðar, þar sem aðgengi að hjálpargögnum er til staðar og þar sem hægt er að komast að þeim svæðum sem verða fyrir náttúruhamförum. Svæðið í Kasmír er stríðshrjáð svæði. Það hefur verið lokað, það er í miklu fjalllendi þar sem umferð hefur ekki legið um og í venjulegu árferði er erfitt að komast um í farartækjum, hvað þá eftir hörmungar eins og jarðskjálftann. Vegna þessara erfiðleika við flutninga verður allt hjálparstarf miklu erfiðara og dýrara heldur en ef þetta gerðist hjá okkur þar sem til viðbótar kostnaði við matvæli og fatnað kemur allur sá aukakostnaður sem því fylgir að koma hjálpargögnum á leiðarenda.