132. löggjafarþing — 21. fundur,  15. nóv. 2005.

Áfengislög.

50. mál
[19:04]
Hlusta

Flm. (Guðjón A. Kristjánsson) (Fl):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þingmenn Drífa Hjartardóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Birkir J. Jónsson. Frumvarpið er flutt af þingmönnum úr öllum flokkum á Alþingi og hefur oft verið flutt áður. Hins vegar eru fleiri flutningsmenn að málinu nú en áður hefur verið.

Málið er gamall kunningi í þingsal. Ég hef mælt fyrir því einum fjórum sinnum. Það gengur út á að fólki verði almennt heimilt að framleiða léttvín, vín undir 15% styrkleika. Í 1. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

„Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 3. mgr. og orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. og 2. mgr. 6. gr. skal heimilt að framleiða án leyfis vín úr innlendum berjum, ávöxtum eða jurtum til eigin neyslu sem í eru að rúmmáli minna en 15% af hreinum vínanda.“

Lög þessi mundu þegar öðlast þegar gildi, samkvæmt 2. gr. þessa frumvarps.

Tilgangur frumvarps þessa er að gera þeim sem vilja og getu hafa til kleift að framleiða létt vín úr innlendum ávöxtum og jurtum og að þeir megi bera það fram án þess að slíkur heimilisiðnaður teljist lögbrot. Flutningsmenn telja að rétt sé að lagfæra áfengislögin þannig að framleiðsla léttvíns með tilgreindum hráefnum verði leyfð. Með því aukna frelsi sem hér er lagt til gæti innan fárra ára orðið til þekking við gerð matarvína sem kynni síðar að verða séríslensk framleiðslu- og verslunarvara, t.d. vín úr hreinni náttúruafurð eins og íslenskum berjum.

Rétt er að geta þess að frumvarpið gerir ekki ráð fyrir því að þau vín sem fólki er heimilt að framleiða séu til sölu. Þá verður að fara allt aðrar leiðir, þ.e. leiðir sem nú eru í löggjöfinni, þ.e. eigi að framleiða í stórum stíl vín sem ætlað er sem söluvara í verslunum, vínbúðum eða veitingahúsum. Frumvarpið kveður ekki á um að farið verði út í framleiðslu á sérstakri söluvöru heldur opnar það fyrir að þeir fjölmörgu Íslendingar sem kunna til verka við að búa til matarvín fremji ekki dags daglega lögbrot við að nýta sér þá þekkingu sína, sem oft á tíðum hefur áunnist með því að fólk hefur þreifað sig áfram við að nota ýmsar íslenskar afurðir til að framleiða íslensk matarvín.

Ég hef orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að bragða á ýmsum víntegundum hjá fólki sem framleiðir þau. Reyndin er sú, hæstv. forseti, að fólk má kaupa tæki til að framleiða vín, eins og menn vita. Til eru sérstakar búðir sem selja tækjabúnað til að framleiða áfengt öl og vín en fólki er í raun bannað, samkvæmt íslenskum lögum, að nota þau í þeim tilgangi að framleiðslan verði áfeng að einhverju ráði. Þetta er tvískinnungsháttur, hæstv. forseti, að menn mega kaupa tækin og allt sem til víngerðar þarf en megi ekki nota þau til þess er þau eru ætluð. Þessu held ég að þurfi að breyta.

Ég og aðrir flutningsmenn að frumvarpinu viljum styðja við þá þekkingu sem víða er til á Íslandi, einkum í sveitum landsins og sérstaklega, að ég tel, hjá konum sem búa á landsbyggðinni, bændum eða bændakonum, sem kunna margar hverjar að framleiða ágætis matarvín úr íslenskum jurtum, sérstaklega berjavín og rabarbaravín. Reyndar má einnig gera vín úr fíflum o.s.frv. Margs konar þekking er til í landinu í þá veru. Hún er hins vegar falin vegna þess að fólk veit að þetta er lögbrot. Það hefur ekki leyfi til að framleiða vín með þeim styrkleika sem almennt er á matarvínum, frá 7% og upp í 15%. Það er hins vegar gert, ella yrðu vínin ekki sérlega geymsluvæn til langs tíma, þótt geymsluþolinu mætti einnig ná fram með gerviefnum, rotvarnarefnum o.s.frv. En þá eru menn í raun að eyðileggja indælis náttúruafurð sem hægt er að framleiða úr íslenskum jurtum, berjum og ávöxtum.

Mín niðurstaða er því sú, hæstv. forseti, að þetta mál, sem ég hef oft í gamni og alvöru kallað litla bruggmálið, eigi að fá hljómgrunn hér á Alþingi. Ég vona að þingmenn samþykki á endanum að Íslendingum, eins og nágrönnum okkar á Norðurlöndunum, verði heimilt að framleiða sín eigin matarvín og það teljist ekki lögbrot, að menn megi bera eigin framleiðslu fyrir gesti alveg eins og menn mega bera fram sitt eigið hangikjöt eða rúllupylsu eða magál, þeir sem kunna enn að gera slíkt, heimagerða framleiðslu, án þess að við því sé amast.

Ég er sannfærður um að þegar fólki verður leyft að framleiða eigin matarvín mun ýmis þekking koma upp á yfirborðið sem útsjónarsamir menn í vínframleiðslu munu sækjast eftir, þ.e. uppskriftir og framleiðsluaðferðir fólks. Ég hygg að það að heimila þessa framleiðslu geti orðið til að síðar verði framleidd vín í stórum stíl sem teljist séríslensk framleiðsla, séríslensk afurð. Þau nytu þess að vera framleidd í okkar hreina umhverfi og fengju þann gæðastimpil sem ég tel að hægt væri að fá á framleiðslu íslenskra léttvína. Ég sé í þessu tækifæri fyrir framtíðina.

Eins og ég tók fram áður yrði það hins vegar að fara í annan farveg ef menn ætluðu að framleiða vín í stórum stíl. Þá yrðu menn að uppfylla allar þær reglur sem fylgja þarf við að framleiða vín, hafa til þess sérstakt húsnæði, uppfylla hreinlætisreglur, hafa lokaðar geymslur o.s.frv. eins og menn þekkja úr áfengislögunum í dag. Þar erum við bara komin á annað stig.

Þetta frumvarp fjallar hins vegar ekki um það heldur er eingöngu um að ræða að leyfa fólki sem hefur áhuga, vilja, getu, þekkingu og aðgang að hráefni til víngerðar að nýta sér það. Ég held að slík þekking sé víða til í sveitum landsins og muni verða eftirsóknarverð síðar, þegar fólk þarf ekki að fela framleiðsluna á flöskum í efstu hillunum í búrinu í sveitinni. Fólk fengi þar með að sýna sérþekkingu sína og kunnáttu og bera ljúffeng matarvín á borð með íslenskri villibráð. Ég held að það mundi auka gildi þess sem við kunnum í íslenskri matargerð.