132. löggjafarþing — 22. fundur,  16. nóv. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[12:39]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hér er verið að leggja til að auka enn fjármagn til hernaðarflugs til Afganistans og til Íraks á vegum NATO upp á 87 millj. kr. Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs höfum ítrekað lýst því yfir á Alþingi að við erum andvíg þátttöku Íslands í hernaðarumsvifunum bæði í Írak og Afganistan og getum því ekki falllist á að enn sé verið að auka fjármagn til að taka þátt í hernaðarumsvifum á þeim vettvangi og segjum því nei við þessum lið, frú forseti.