132. löggjafarþing — 23. fundur,  16. nóv. 2005.

Breikkun Suðurlandsvegar.

227. mál
[14:55]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Frú forseti. Ég beini fyrirspurn minni til hæstv. samgönguráðherra í sambandi við breikkun Suðurlandsvegar og þær framkvæmdir sem nú standa yfir á hluta þeirrar leiðar:

1. Var gert ráð fyrir því við hönnun á breikkun Suðurlandsvegar að víraleiðari yrði notaður til að skilja á milli akreina þar sem vegurinn verður þríbreiður (2+1)?

2. Hve breiðar verða vegaxlirnar og hve mikill verður hallinn niður af veginum á hverja 6 metra út?

3. Hver er meðalbreidd vegaxla á þríbreiðum vegum með víraleiðara í Svíþjóð og hver er meðalhallinn niður af vegunum á hverja 6 metra út?

4. Liggur fyrir áætlun um hvenær breikkun Suðurlandsvegar lýkur?

Þær samgöngubætur sem nú standa yfir á þessari leið eru kærkomin vegarbót. Það er verið að leggja á hluta af leiðinni þríbreiðan veg en hins vegar hafa margir orðið til að furða sig á mannvirkinu eins og það lítur út núna vegna þrengsla og vegna þess hve vegurinn er mjór og þar er skilið á milli með víraleiðara. Vegurinn virðist á stórum köflum vera án vegaxla og þverhnípt sums staðar út af veginum niður um. Þessi gagnrýni hefur m.a. komið fram hjá stjórnarmönnum í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og í viðtali á Bylgjunni sagði Ólafur Guðmundsson, með leyfi forseta, að hann stæði í þeirri trú að vegurinn hefði ekki verið hannaður upphaflega með víraleiðara á milli en víraleiðarinn hefði verið settur síðar — sem sé í sjálfu sér hið besta mál og undir það tek ég, virðulegi forseti. — En það hins vegar hefði haft þær afleiðingar að vegurinn hefði orðið allt of mjór, þar af leiðandi séu engar axlir á honum og mjög hátt fram af honum. Ólafur sagði að þegar þríbreiður vegur væri lagður yrði að skoða alla hluti og þar með talinn hallann fram af. Hann nefnir að Svíar vinni út frá þeirri reglu að hafa 1,2 til 1,5 metra í öxl og síðan hallar út af veginum einn metra niður á hverja 6 metra út en vegurinn í Svínahrauni er með þrjá metra niður fyrir hvern metra út.

Þessar fullyrðingar, sem ég tel að eigi við nokkur rök að styðjast, hljóta að varpa nokkrum skugga á öryggi vegarins og þær framkvæmdir sem nú standa yfir, sem eru að öðru leyti mjög góðar. Ef um alvarlegt samgönguslys eða samgöngumistök er að ræða á Svínahraunsvegi þarf þá ekki að bregðast við strax og leiðrétta mistökin? En það er mikilvægt að skilja milli akreina með einhverjum hætti. Það er algert grundvallaratriði upp á öryggi.

Á síðustu 15 árum hafa hátt í þúsund slys orðið á Suðurlandsvegi. Þau slys eru fjórfalt dýrari en almennt gengur og gerist með slys á vegum landsins og talið er að þau hafi kostað 5 milljarða á síðustu 15 árum. Þá hefur hæstv. samgönguráðherra svarað mér því til í fyrirspurnum að það mundi kosta 6–7 milljarða að breikka tvöfalt að fullu þá 45 km sem liggja á milli Rauðavatns og Selfoss. Rökin fyrir því eru ekki síst þau að umferð um veginn hefur aukist um 70–80% á síðustu tíu árum.