132. löggjafarþing — 23. fundur,  16. nóv. 2005.

Siglufjarðarvegur um Almenninga.

243. mál
[15:13]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason spyr um Siglufjarðarveg og Almenninga.

Í fyrsta lagi spyr þingmaðurinn:

„Hvernig hyggst ráðherra bregðast við nýjum upplýsingum um jarðsig og hættu á stórfelldu jarðfalli og berghlaupi á veginum milli Skagafjarðar og Siglufjarðar um Almenninga?“

Svar mitt er svohljóðandi:

Jarðsig á Siglufjarðarvegi hefur verið til staðar á afmörkuðum köflum, allt frá því vegurinn var tekinn í notkun á sínum tíma. Vegagerðin hefur kerfisbundið fylgst með þessu sigi síðustu 25 árin og staðið að ýmsum sértækum rannsóknum vegna þessa vandamáls. Þær rannsóknir sem hv. fyrirspyrjandi vísar til er einn liður í því rannsóknarferli sem enn er ólokið. Ekki verður séð að nýjar upplýsingar kollvarpi þeim hugmyndum sem áður hafa legið fyrir eða sýni fram á stóraukna hættu á jarðfalli á veginum. Hætta á meiri háttar sigi hefur lengi verið ljós og var þegar farið að ræða hana fyrir aldarfjórðungi eða svo. Nýjar rannsóknir, ásamt þeim eldri, eru ætlaðar sem grunnur að áætlun um aðgerðir sem leyst gætu vandann til lengri tíma. Það er það viðfangsefni sem við þurfum að huga að og hafa stöðugt í vinnslu.

Í annan stað spyr þingmaðurinn:

„Hve langan undirbúningstíma þyrfti til að hefja gerð jarðganga úr Fljótum til Siglufjarðar ef brýn nauðsyn krefði og hvað mundu slík göng kosta?“

Þá er komið að stærra viðfangsefni. Engar hugmyndir eru um gerð jarðganga úr Fljótum til Siglufjarðar. Það er mitt svar, enda hefst jarðgangagerð frá Siglufirði til Ólafsfjarðar á næsta ári. Almennt má segja að undirbúningstími fyrir jarðgöng af þessari stærð sé tvö til þrjú ár. Það er geysilega mikil rannsóknarvinna sem þarf að viðhafa áður en hægt er að setja slíkt verkefni af stað. Slík göng yrðu líklega 5–6 km og kostnaður áætlaður, miðað við reynslutölur úr öðrum áttum, um 4 milljarðar kr. Hér er því að sjálfsögðu um mikið stórvirki að ræða, sem ekki er á dagskrá, ég vil undirstrika það, og lít ég þá í ýmsar áttir til Siglfirðinga sem sitja hér í salnum og þekkja þessi mál afskaplega vel.

Engu að síður ber að þakka fyrir þessa fyrirspurn. Við þurfum að hafa mjög vel í huga þær hættur sem þarna gætu verið á ferðinni og vekja okkur til umhugsunar um hvað við þurfum að vanda vel til vegstæða hverju sinni. Gæta að undirbúningi og hönnun og það er einmitt það sem verið er að gera í þessu tilviki. Rannsóknir standa yfir og hafa staðið stöðugt yfir vegna vegarins um Almenninga.