Siglufjarðarvegur um Almenninga.
Frú forseti. Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst frekar falskur tónn í þessari fyrirspurn hv. þm. Jóns Bjarnasonar. Ég held að það sé ekki eingöngu og ekki aðallega umhyggja hans fyrir jarðsiginu á Siglufjarðarvegi, sem hefur verið frá því að vegurinn var opnaður eins og fram kom hjá ráðherra, heldur hitt að íbúar í Skagafirði, og kannski sérstaklega á tilteknum bæ í Fljótum, eru sífellt að jarma í eyrun á hv. þingmanni. Ég tel að það sé aðalatriði þessarar fyrirspurnar og það sem kemur fram í öðrum liðum um aðra legu á jarðgöngum á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Hv. þingmaður á að mínu mati að láta af þvergirðingshætti sínum í garð þeirra framkvæmda sem tekin hefur verið ákvörðun um hér á hv. Alþingi, þ.e. að tengja Siglufjörð við Eyjarfjarðarsvæðið með göngum milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð. Þær framkvæmdir eru hafnar. Það er búið að byggja tvær brýr. Það er verið að leggja rafmagn að væntanlegum jarðgangamunna og það sem mest er um vert er að framkvæmdir hafa verið í Héðinsfirði í sumar við að moka laust efni (Forseti hringir.) frá þar sem sprengt verður út úr fjallinu úti í Héðinsfirði. Því ber auðvitað að fagna sérstaklega.