132. löggjafarþing — 23. fundur,  16. nóv. 2005.

Siglufjarðarvegur um Almenninga.

243. mál
[15:19]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Þó að tekin hafi verið ákvörðun um göng til Siglufjarðar um Héðinsfjörð er ljóst eins og er að þungaflutningar munu nánast allir halda áfram að fara hina leiðina til og frá Siglufirði. Því þurfa menn auðvitað að hafa sérstakar gætur á þessum vegi og meta það með langtímamarkmið í huga hvað hægt sé að gera til að viðhalda honum. Hvort ganga þurfi svo langt að fara í ný göng út í sjó. Ég ætla að vona að það verði ekki niðurstaðan, en hitt er alveg augljóst mál að það yrði afar slæmt fyrir Siglfirðinga að missa þá leið sem þarna liggur, því að á meðan Reykjavík er aðal útskipunar- og uppskipunarhöfn fyrir landið þarf Siglufjörður á þessu að halda. (Gripið fram í.) Ég vona að á Akureyri og Austfjörðum og jafnvel á Vestfjörðum verði í framtíðinni hafnir og þangað fari og komi flutningar, en það er ekki komið að því enn.