132. löggjafarþing — 23. fundur,  16. nóv. 2005.

Dánarbætur.

151. mál
[15:54]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég er sammála allsherjarnefnd um þetta. Ég hafði samráð við nefndina eða nefndin hafði samráð við mig þegar hún flutti þetta frumvarp. Það náði hins vegar ekki fram að ganga á síðasta þingi. Ég veit að nefndin er að vinna að þessu máli áfram. Ég hef hvatt til þess að nefndin endurflytji frumvarpið og ég vona svo sannarlega að það verði hægt að afgreiða það á þessu þingi sem nú situr.