132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Eingreiðsla til bótaþega.

[10:36]
Hlusta

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Svör Halldórs Ásgrímssonar hæstv. forsætisráðherra koma því miður ekki á óvart. Það var ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem árið 1995 lagðist svo lágt að afnema jólauppbót til atvinnulausra, þannig að ekki einasta hafa þeir ekki haft vilja til að veita slíkar jólauppbætur heldur hafa þeir beinlínis gengið svo langt að afnema slíka uppbót til þeirra sem lakast voru settir. Þessi sama ríkisstjórn sveik samkomulag sitt við öryrkja um kjarabætur fyrir síðustu kosningar um 500 millj. kr. en á fé í hvers kyns gæluverkefni og óráðsíu eins og við höfum séð í nýlegu fjáraukalagafrumvarpi.

Kjör öryrkja, atvinnulausra og ellilífeyrisþega eru í fjárlögum hækkuð samkvæmt breytingum á almennum vinnumarkaði. Til þess er vísað að þau eigi að taka þeim breytingum. Nú hafa þau tekið breytingum vegna verðlagsþróunar, ekki aðeins um þessar 26 þús. kr. greiðslu heldur liggur líka fyrir í yfirlýsingum 0,65% hækkun á töxtum, sem hlýtur líka að eiga að ná til þessara hópa nema auðvitað það sé sérstök stefna ríkisstjórnarinnar að skilja þessa hópa algjörlega eftir í því góðæri sem nú ríkir í íslensku samfélagi.