Eingreiðsla til bótaþega.
Virðulegur forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur í þessum ræðustól staðfest að 500 millj. kr. vanti upp á að það samkomulag sem hann gerði fyrir síðustu kosningar sé efnt. Það er af virðingu við Alþingi sem ég hef ítrekað minnt hæstv. forsætisráðherra á þá staðreynd. Þar sem Alþingi er sýnt virðingarleysi er að svíkja það samkomulag jafn blákalt og hæstv. forsætisráðherra hefur beitt sér fyrir. Það sem er fyrir neðan virðingu Alþingis er að það skuli aftur og aftur af bandalagi þeirra sem höllustum fæti standa í samfélaginu vera dregið fyrir Hæstarétt og dæmt fyrir mannréttindabrot fyrir þau kjör sem það hefur búið öryrkjum.
Hér eru, virðulegur forseti, til afgreiðslu á Alþingi fjáraukalög í næstu viku. Ef 26 þús. kr. greiðsla á að koma til lífeyrisþega og atvinnulausra nú í desember er eðlilegt að sú fjárveiting sé á fjáraukalögum enda væri önnur ráðstöfun óheimil. Það væri óheimilt að ráðstafa fjármunum til þess ef ekki væru til þess heimildir á fjáraukalögum og það er þess vegna tækifæri til þess núna fyrir hæstv. ríkisstjórn að afgreiða fjárveitingu á fjáraukalögum, nú við 3. umr. í næstu viku, til þess að tryggja það að þeir sem búa við lökustu kjör í landinu, lífeyrisþegar og atvinnulausir, fái sömu kjarabót á aðventunni og þeir sem eru á vinnumarkaði enda eiga kjör þeirra að fylgja kjörum á hinum almenna vinnumarkaði.