132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Eingreiðsla til bótaþega.

[10:46]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Svör hæstv. forsætisráðherra benda til að ekki hafi verið hugað sérstaklega að sjálfsögðum rétti öryrkja og aldraðra þegar samkomulag var gert við verkalýðshreyfinguna. Því verður varla trúað að hæstv. ráðherrar í ríkistjórninni muni ekki beita sér fyrir því að lagfæra þá stöðu sem snýr að öryrkjum og öldruðum. Ég vil beina þeirri eindregnu áskorun til hæstv. forsætisráðherra að það liggi fyrir fyrr en seinna hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við þessu máli. Mér finnst að hér sé um sjálfsögð réttindi þessara hópa að ræða sem ríkisstjórnin verður að gjöra svo vel að láta fylgja öðrum ákvörðunum.