Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Afstaða ríkisstjórnarinnar og afstaða mín í þessu máli liggja fyrir. Ég hef komið því skriflega á framfæri við utanríkisráðuneytið í Washington. En það er með þetta eins og ýmislegt annað að það gengur ekki greiðlega að fá skýr svör. Samt er það þannig að Össur Skarphéðinsson virðist vera með öll svörin en þetta er ekki fyrsta málið þar sem hann talar og talar án þess að hafa fullnægjandi gögn eða upplýsingar í höndunum. (ÖS: Lestu Moggann?)
Við höfum látið það koma skýrt fram að við sættum okkur ekki við flug af þessu tagi en hingað koma milli 1.500 og 2.000 flugvélar um Keflavíkurflugvöll á hverju einasta ári auk þeirra sem lenda í Reykjavík. Vélin sem lenti hér í gær fékk eðlilega tollskoðun, það var ekkert athugavert við það sem í henni var að finna. (Gripið fram í.)
Hv. þingmaður getur fullyrt hér út í loftið eins og hann vill en stjórnvöldum ber að taka ábyrga afstöðu. En auðvitað fordæmum við ef slíkt flug með fanga á sér stað, hvort sem það er hér að finna eða annars staðar.