132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:28]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kom einmitt að kjarna málsins. Það tekur langan tíma að reka mál fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Ég met stöðuna sem svo að Norðmenn séu í raun og veru að reyna að láta tímann vinna með sér í þessu máli, því með því að eins konar hefðarréttur skapist á þessu umdeilda hafsvæði þá verði allar tafir, hvort sem þær eru af hendi okkar Íslendinga, Norðmanna eða annarra í málinu, þeim í hag en okkur í óhag. Þetta er ferli sem mun taka nokkur ár og þess vegna tel ég að það sé mjög mikilvægt að við hröðum undirbúningi að málinu og ljúkum honum og látum síðan virkilega á það reyna fyrir dómstólnum hver réttur okkar á svæðinu sé. Það er öllum ljóst sem fylgst hafa með þessu að Norðmenn hyggjast ekki gefa eftir eina tommu í málinu og við munum aldrei fá neina niðurstöðu nema fyrir þessum dómstóli.