132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:29]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka utanríkisráðherra fyrir ræðu hans um utanríkismál. Þar var komið inn á ýmis efni sem tengjast störfum utanríkisráðuneytisins. Eins og fram kom í máli hans eru þau ansi víðfeðm og þar er, eftir því sem mér sýnist, vel á málum haldið svona almennt og yfirleitt. Ráðherra gat þó auðvitað ekki nema rétt tæpt á flestum þessara mála enda tíminn hér takmarkaður til þess að fara yfir þau öll. Undir lok ræðu hæstv. utanríkisráðherra kom fram ákveðin stefnumörkun í utanríkismálum og þar sagði, með leyfi forseta:

„Utanríkisstefna Íslands byggist sem fyrr á gæslu hagsmuna lands og þjóðar og öflugu fyrirsvari gagnvart öðrum ríkjum.“

Síðan var bætt við að hún byggðist líka á þátttöku í alþjóðlegum verkefnum. Utanríkisstefnan byggist á því að gæta hagsmuna lands og þjóðar. Jú, það liggur nú eiginlega í augum uppi að það hlýtur að vera verkefni utanríkisþjónustunnar og það hlýtur að vera stefna okkar. En hvert er erindi okkar á alþjóðavettvangi? Hvert er það erindi? Hvar og hvernig ætlum við að leggja okkar af mörkum í þessu alþjóðasamstarfi á alþjóðavettvangi sem við eigum að taka þátt í? Hvernig ætlum við að rækja skyldur okkar við hinar fátækari þjóðir heims? Við erum enn langt undir þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna þó að vissulega hafi þokast í rétta átt í þeim efnum, þúsaldarmarkmiðunum með framlög til þróunaraðstoðar. Hver er stefna okkar gagnvart hinu alþjóðlega stofnanakerfi? Hver er stefna okkar gagnvart Alþjóðabankanum, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða Heimsviðskiptastofnuninni? Allar þessar stofnanir sæta nú aukinni gagnrýni um allan heim.

Ég verð að játa, virðulegur forseti, að ég beið nokkuð spennt eftir ræðu hæstv. utanríkisráðherra sem er nýkominn til starfa og ég verð líka að játa, virðulegur forseti, að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa ræðu. Mér fannst hún metnaðarlaus og mér fannst skorta upp á sýn til framtíðar hjá nýjum ráðherra sem er að marka sér völlinn í fyrsta sinn í sal Alþingis. Að þessu sögðu vil ég geta þess að mér fannst þessi ræða kannski ekki síst athyglisverð fyrir það sem ekki var í henni, t.d. hversu létt var skautað yfir Íraksmálið, eins og kom fram hjá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni var sjö og hálf lína um það mál í ræðunni, en ekki síður vegna hins hversu létt var skautað yfir viðræðurnar um varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna sem afgreitt var á tólf línum í ræðunni.

Mér finnst ráðamenn þjóðarinnar sem hafa verið í samfelldu samningaferli í 11 ár skulda þjóðinni betri upplýsingar um málið en hingað til hafa komið fram. Mér finnst þeir skulda þjóðinni betri rökstuðning fyrir áherslum sínum og samningsmarkmiðum í þessu máli. Ég er viss um að ef þeir gerðu betur grein fyrir því og væru ekki stöðugt með þennan leyndarhjúp yfir þessum viðræðum gætu þeir fengið breiðari stuðning í viðræðunum og styrkt þannig samningsstöðu sína frá því sem nú er. Ég geri ráð fyrir að ráðamenn hljóti að treysta sér í slíkar útskýringar, að þeir hljóti að hafa það fast land undir fótum að þeir geti sett fram skiljanlegar kröfur og útskýrt þær fyrir öllu venjulegu fólki.

Í ræðunni sagði hæstv. utanríkisráðherra að meginmarkmiðið í viðræðunum væri að tryggja lágmarksviðbúnað, eins og segir í ræðunni, og þetta væri gert á grundvelli varnarsamningsins frá 1951. Á þetta getum við í Samfylkingunni fallist sem markmið. Það þarf auðvitað að tryggja varnir og öryggi landsins rétt eins og við þurfum löggæslu og almannavarnir, ekki viljum við vera án þess. Við erum með tvo samninga um öryggis- og varnarmál okkar, annars vegar samninginn um aðildina að Atlantshafsbandalaginu frá 1949 og hins vegar hinn tvíhliða samning við Bandaríkin frá 1951 sem felur í sér ótvíræða skyldu Bandaríkjamanna til að gera ráðstafanir til varnar Íslandi. Eftir stendur spurningin hver á að vera lágmarksviðbúnaðurinn sem við þurfum til að tryggja varnir og öryggi landsins. Eru það fjórar orrustuþotur? Kannski. Ég get ekki svarað því og til að hægt sé að svara þeirri spurningu verður að vinna raunhæft hættumat og meta þá vá sem að okkur getur helst steðjað og hvaða varnarviðbúnað þurfi til að takast á við hana. Þetta mat viljum við í Samfylkingunni að verði unnið, og höfum flutt um það tillögur í þinginu, en ríkisstjórnin ekki. Fyrir því er líklega bara ein ástæða. Út úr því mati kæmi hugsanlega að hér væri ekki þörf á miklum viðbúnaði. Það gæti rennt stoðum undir óskir Bandaríkjamanna allt frá árinu 1993 að fara af landi brott með F15 flugsveitina sem hér er og allt sem henni fylgir og það er býsna mikið sem henni fylgir. Líklega má halda því fram að það sé mestallur viðbúnaðurinn í Keflavík sem fylgir þessum fjórum þotum. Ég geri ráð fyrir að það sé þess vegna sem ofuráherslan er lögð á orrustuþoturnar fjórar sem samningsmarkmið Íslendinga í þessum viðræðum.

Fyrrverandi forsætisráðherra og sá núverandi hafa báðir látið á sér skiljast að náist þetta markmið ekki fram hafi herinn einfaldlega ekkert hér að gera, þá geti hann farið. Með öðrum orðum þá verði varnarsamningnum einfaldlega sagt upp. Þetta hljómar einkennilega í eyrum margra því að mörgum finnst lítil hótun fólgin í því að segja hernum að fara af landi brott með öll sín tæki og tól, sem er einmitt það sem hann vill. En hótunin er auðvitað ekki tæknilegs eðlis heldur er þetta pólitísk hótun. Þetta er hótun um uppsögn á varnarsamningi sem væri pólitískt áfall fyrir Bandaríkjastjórn og þetta er í raun hótun um breytta stefnu í utanríkismálum. Hótun um að færa sig af hinu bandaríska áhrifasvæði í utanríkismálum og yfir á hið evrópska. Forsætisráðherra sagði þetta nánast berum orðum í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins um leið og hann snupraði sjálfstæðismenn fyrir seinagang og árangursleysi í þessum viðræðum, því auðvitað var forsætisráðherra að gera það. Það merkilega við þetta mál er auðvitað að það hefur fylgt Sjálfstæðisflokknum alla tíð í ríkisstjórn. Það var í höndum fyrrverandi forsætisráðherra meðan hann var í forsætisráðuneytinu og síðan fór það með honum yfir í utanríkisráðuneytið þegar hann flutti sig þangað og situr eftir þar núna meðan núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins er þar. Það eru því sjálfstæðismenn sem hafa farið með þetta mál allan tímann sem er út af fyrir sig merkilegt en skýrir kannski að þeir eru nú snupraðir af núverandi forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins.

Það er alveg rétt hjá forsætisráðherranum að það er mikilvægt að fylgjast með þróuninni í Evrópu og horfa meira til þeirrar áttar því að við kunnum að eiga þar öryggissamfélag í framtíðinni. Hins vegar er ekki á vísan að róa þar því að hin sameiginlega utanríkis- og varnarstefna Evrópusambandsins er auðvitað ekki fullburða. En það er óviðunandi að samningaviðræðurnar við Bandaríkjamenn séu ekki leiddar til lykta. Það er óviðunandi að stjórnvöld geti ekki útskýrt hvernig á þeim vandræðagangi standi, þessari streitu sem hefur skapast á milli samningsaðila, hvað ber á milli og hvers vegna.

Valur Ingimundarson sagnfræðingur sagði í fyrirlestri í september 2004 að sambandið milli Bandaríkjanna og Íslands væri brothætt og staðnað. Svokallað öryggissamfélag ríkjanna væri á því stigi að það væri að leysast upp og það þyrfti víðtækari pólitíska og efnahagslega skuldbindingu af beggja hálfu en bara fjórar orrustuþotur. Ef það er raunin, ef þetta 50 ára öryggissamfélag þessara ríkja er að leysast upp verða menn að velta fyrir sér í fullri alvöru hvað eigi að koma í staðinn. Sú heimavinna hefur ekki farið fram, ekkert frekar en matið á varnarþörfinni. Það sem er kannski verst í þessu máli öllu saman er að það virðist vera uppi alger pattstaða sem menn komast ekki út úr.

Ég ætla aðeins að víkja að leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í september, virðulegur forseti. Mér er líklega svipað farið og utanríkisráðherra að hafa orðið fyrir vonbrigðum með niðurstöðu þess fundar. Kannski voru væntingarnar bara of miklar. En sé raunsæið haft að leiðarljósi má eflaust segja að ekki hafi verið við því að búast að leiðtogar heimsins kæmust lengra að þessu sinni. Lokaskjalið var vissulega nokkuð útþynnt en þó náðist samstaða milli ríkja heims í allnokkrum mikilvægum málaflokkum. Það er eitt tiltekið efni sem mér finnst skipta hvað mestu máli í því sambandi. Þar er um að ræða að öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að það sé sameiginleg skylda þeirra að vernda óbreytta borgara gegn þjóðarmorði, stríðsglæpum, þjóðernishreinsunum og glæpum gegn mannkyninu. Þá skuldbinda þau sig til að gera slíkt á vettvangi öryggisráðsins hvenær sem stjórnvöld á hverjum stað hafa vanrækt þá skyldu. Þessi samþykkt tengist nýrri skilgreiningu á öryggi sem hefur verið að ryðja sér til rúms í hinu alþjóðlega samfélagi á undanförnum árum. Sú skilgreining byggir á því að mannhelgi, mannréttindi og mannöryggi er sett ofar en fullveldið og þjóðaröryggi. Ekki svo að skilja að þetta geti ekki farið saman, síður en svo, þetta er auðvitað órjúfa tengt í lýðræðisríkjum sem ástunda opna, ábyrga og skilvirka stjórnarhætti.

Þessi nýja skilgreining á rót sína að rekja til þeirra breytinga sem orðið hafa í heiminum frá lokum kalda stríðsins og nýju mati á þeirri vá sem steðjar öðru fremur að íbúum heimsins og með þeim hætti tengist þetta vissulega okkar íslensku varnarhagsmunum og viðbúnaði. Ógnin felst nefnilega ekki lengur öðru fremur í hættunni á innrás óvinveittra ríkja heldur stafar mest ógn af örbirgð, sjúkdómum, þjóðernishreinsunum, ofbeldi og mansali sem á sér stað vegna ógnarstjórnar heima fyrir eða vegna þess að ríkisstjórnir hinna fullvalda ríkja eru ekki færar um að vernda þegna sína. Og þegar ríkisstjórnin bregst verður alþjóðasamfélagið að grípa inn í.

Hugmyndin um mannöryggið kallar á nýtt skipulag og ný vinnubrögð, bæði af hálfu hinna fullvalda ríkja sem og alþjóðasamfélagsins. Mannöryggið leggur alþjóðasamfélaginu á herðar skylduna til að vernda. Þeirri skyldu fylgir mikill vandi vegna þess að henni fylgir hættan á misnotkun. Með öðrum orðum, voldug ríki sem telja þjóðarhagsmunum sínum stefnt í voða freistast til að ráðast einhliða til atlögu við önnur ríki undir formerkjum verndarskyldunnar. Þetta gerðist auðvitað með innrásinni í Írak og það var mikill álitshnekkir fyrir íslensk stjórnvöld að þau skyldu glepjast til að styðja einhliða ákvörðun ríkisstjórna Bandaríkjanna og Bretlands að ráðast inn í Írak áður en alþjóðlegir vopnaeftirlitsmenn höfðu lokið sínum störfum og Sameinuðu þjóðirnar tekið ákvörðun í málinu. Vissulega voru vond stjórnvöld í Írak en það voru hvorki gereyðingarvopn í landinu né þjóðarmorð yfirvofandi eins og var raunin t.d. í Rúanda og Darfúr þar sem alþjóðasamfélagið horfði á aðgerðalaust.

Á undanförnum árum hefur talsverð vinna verið lögð í að skilgreina þær forsendur sem þurfa að liggja að baki ákvörðun um að fullveldi ríkja víki fyrir verndarskyldu alþjóðasamfélagsins. Kanadastjórn hefur unnið talsvert mikið í málinu og finnsk stjórnvöld hafa gert það líka. Þau hafa lagt fram tillögur um hvaða grundvallarreglum þurfi að hlíta til að hernaðaríhlutun geti talist réttlætanleg. Fulltrúar norrænu jafnaðarmannaflokkanna hafa tekið þessar hugmyndir upp á sína arma og sett fram þá afstöðu að fyrir hernaðaríhlutun af mannúðarástæðum þurfi samþykki öryggisráðsins og þá er það öryggisráð án neitunarvalds og aðeins aðalritari Sameinuðu þjóðanna eigi að hafa rétt til að leggja fram tillögu um hernaðaríhlutun á grundvelli mannöryggis.

Á vettvangi norrænu jafnaðarmannaflokkanna og jafnaðarmannaflokka Evrópu er almenn mikil vinna í gangi sem miðar að því að bæta hið alþjóðlega stofnanakerfi með það að markmiði að auka jöfnuð og réttlæti milli ríkja og innan ríkja. Markmiðið er að draga úr völdum stórvelda og stórfyrirtækja og tryggja hlutdeild þeirra fátæku í hinni miklu auðlegð jarðarinnar. Á síðastliðnum 50 árum höfum við notað meira af auðlindum en í samanlagðri sögu mannkyns fram til þess tíma. Samt hefur misskipting aukist og þeim hefur ekki fækkað sem lifa við örbirgð. 45% jarðarbúa lifa af 2 dollurum eða minna á dag. Þeim hefur að vísu fækkað á þéttbýlum svæðum Kína og Indlands en þeim hefur fjölgað annars staðar svo sem í Afríku. Má kannski segja að þetta séu stærstu efnahagsmistök tuttugustu aldarinnar að svona skuli fyrir okkur komið þrátt fyrir alla þessa auðlegð. Það er að hluta til vegna þess að stofnanir eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Alþjóðabankinn og Heimsviðskiptastofnunin hafa brugðist. Þær eru byggðar upp samkvæmt uppskrift eftirstríðsáranna og á forsendum hinna sterku og það er mikilvægt. Þær stofnanir hafa sannarlega hlutverki að gegna og heimurinn væri verr settur án þeirra, en þessum stofnunum þarf að breyta. Þær eru þannig uppbyggðar núna, eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, að iðnríkin fara með 60% af atkvæðamagni innan stofnunarinnar og innan Alþjóðabankans meðan það er 17% innan stofnana Sameinuðu þjóðanna.

Þessu þarf auðvitað að breyta, virðulegur forseti, og ég hefði kosið að sjá einhver merki þess að íslensk stjórnvöld vildu beita sér fyrir slíkum breytingum og standa þannig að málum að við gætum komið á alþjóðavísu öflugu jöfnunarkerfi rétt eins og mönnum tókst að koma upp öflugu jöfnunarkerfi innan þjóðríkjanna um miðbik síðustu aldar.