132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:45]
Hlusta

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var um margt athyglisverð ræða. Mér fannst gaman að því þegar hv. þingmaður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fjallaði um ræðu hæstv. utanríkisráðherra og sagði hana valda nokkrum vonbrigðum og vanta sýn til framtíðar. Ég held að þetta séu nákvæmlega orðin sem notuð hafa verið um hv. þingmann eftir að viðkomandi tók við formannsembætti hjá Samfylkingunni. Svo sannarlega hafði ræða hennar allar forsendur til að valda vonbrigðum og ef menn eru að tala um sýn til framtíðar þá var ekki mikið um slíkt í ræðunni.

Hins vegar liggur hreint og klárt fyrir, og kom blygðunarlaust fram, að núverandi formaður Samfylkingarinnar vill ekki varnarlið hér á landi. Skýrar gat það ekki verið. Ég vil a.m.k. þakka hv. þingmanni fyrir hreinskilnina hvað það varðar. Þetta kemur mér þó ekki á óvart, sérstaklega í ljósi fyrri ummæla og skoðana þingmannsins. Ég þakka þingmanninum fyrir að upplýsa þá skoðun sína að varnarliðið eigi að fara.

En ég vil spyrja út í annað. Hv. þingmaður sagði að Alþjóðaviðskiptastofnunin, ásamt fleiri stofnunum, hefðu brugðist. Hún sagði að Alþjóðaviðskiptastofnunin væri byggð upp frá módeli frá seinni heimsstyrjöldinni sem ekki taki neitt tillit til breytinga. Þetta eru nokkuð miklar fréttir. Menn hafa hingað til talið að GATT-samkomulagið hafi verið byggt á því módeli en Alþjóðaviðskiptastofnunin hafi tekið mið af breyttum aðstæðum í heiminum. Ég vil biðja hv. þingmann að útskýra orð sín nánar og segja okkur hvernig Alþjóðaviðskiptastofnunin hafi brugðist, sérstaklega hinum fátækari þjóðum.