Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég á að vísu svolítið erfitt með að sjá fyrir mér að flugvélar úr alúminíum ryðgi á ruslahaugum en það er kannski ekki kjarni málsins. Kjarni málsins er sá að vel hefur verið haldið á þessum málum. Þess er beðið að menn setjist að samningaborði að nýju. Við Íslendingar leggjum áherslu á að hér verði lágmarksvarnarviðbúnaður og erum reiðubúnir til að taka þátt í vörnum landsins vegna þess að við teljum okkur fær um það. Við getum vel gert það fjárhagslega, einnig vegna þess að flugumferð um Keflavíkurflugvöll hefur aukist. Að þessu leyti eru aðrar forsendur en áður.
Ég er hins vegar ánægður yfir því hve sammála við erum, ég og hv. þm. Össur Skarphéðinsson, um nauðsyn varnarviðbúnaðar hér á landi og að hann skuli kominn inn á grundvallarsjónarmið Sjálfstæðisflokksins í þessu máli.