Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Talar út og suður, já. Hvað er skýrara en að segja hér: Já, ég er á sömu skoðun og hv. formaður Samfylkingarinnar, já, ég er á sömu skoðun og hv. fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar hvað varðar (Gripið fram í.) stefnu í utanríkismálum. Er þetta ekki alveg á hreinu? Ég vona að hv. þingmaðurinn skilji að þetta er mín skoðun og hún er sú sama og þeir tveir hv. þingmenn hafa sem hún vitnaði hér til.
Á sama tíma og ég hvet hv. þingmann til að lesa stefnu Samfylkingarinnar hvet ég hana líka til þess að hlusta á þær ræður sem fluttar eru hér úr ræðustóli því að þau orð sem hv. þingmaður eignaði formanni Samfylkingarinnar úr ræðustóli í ræðunni í morgun voru ekki sönn. (Gripið fram í: Ég var ekkert að ...) Það er því ekki um það að ræða að formaður Samfylkingarinnar sé með eina stefnu og þingmennirnir með einhverja aðra stefnu.
Hv. þingmaður sagði í fyrra andsvari sínu að ákveðnir þingmenn Samfylkingarinnar væru að veikja samningsstöðu Íslands i hvert skipti sem þeir töluðu um varnarmál. Ég held að það sem veiki samningsstöðu Íslands í viðræðum við Bandaríkjamenn sé það að settar eru fram ákveðnar kröfur í samningunum og menn virðast ekki vera tilbúnir til þess að ræða þær á nokkurn hátt. Þess vegna er ekkert er að gerast. Þess vegna hefur ekkert verið að gerast í þessum samningaviðræðum alveg frá því að bókunin rann út árið 2001, því að það trúir því enginn heilvita maður að fyrstu viðræður hafi hafist eins og segir í skýrslu hæstv. utanríkisráðherra fyrir fjórum mánuðum síðan, í júlí á þessu ári.
Ég þarf ekkert að ræða þessi mál í þingflokki Samfylkingarinnar. Það er samstaða um þessi mál þar. Að vísu ræðum við mörg mál í þingflokknum sem betur fer. Ég veit ekki hver venjan er í þingflokki sjálfstæðismanna. En ég get fullyrt og fullvissað hv. þm. Drífu Hjartardóttur um að í þingflokki Samfylkingarinnar eru einstaklingar sem hafa sínar skoðanir og sterkar skoðanir. En við komumst að einni niðurstöðu þegar á þarf að halda.