Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ræða hæstv. utanríkisráðherra Geirs H. Haardes, sú fyrsta af þessu tagi sem hæstv. ráðherra flytur sem utanríkisráðherra, hefði að mínu mati mátt vera bragðmeiri. Ég hefði gjarnan viljað finna meira fyrir því hvað hæstv. ráðherra sjálfum finnst um ýmsa þá þætti sem hann vék að í ræðu sinni. Ég verð að segja að hún virkaði svona nokkuð embættismannaleg á mig. Ég hefði viljað hafa meiri pólitík í henni og meira af hugsjónum hæstv. ráðherra, ef þær eru þá til staðar sem ég vona auðvitað. Ég vona sannarlega að þegar hæstv. ráðherra kemur hér í síðari ræðu sína svari hann einhverjum af þeim spurningum sem beint hefur verið til hans í þessari umræðu.
Marga aðra þætti en varnarmálin er þess virði svo sem að skoða hér nánar — þau hafa auðvitað fengið mesta umfjöllun hér — og fangaflugið sem ríkisstjórninni ber auðvitað að fordæma formlega og senda Bandaríkjastjórn viðeigandi skilaboð í þeim efnum. Hæstv. utanríkisráðherra fordæmdi fangaflugið nú samt sem áður, svona í orði kveðnu, ef það væri til staðar. En eins og ég hef sagt úr þessum ræðustóli áður finnst mér að íslensk stjórnvöld eigi að vera mun meira afgerandi í þessum efnum.
Það sem brennur á mér kannski um fram annað af því sem ber á góma í ræðu hæstv. ráðherra eru mannréttindamálin. Nú er það svo að við sem erum í þessum sal, hv. þingmenn, höfum átt í baráttu við hæstv. ríkisstjórn út af því að skorin hafa verið niður framlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Engin merki eru um að það eigi að leiðrétta þær misgjörðir í fjárlagafrumvarpi því sem fyrir liggur núna. Ég krefst þess að hæstv. fjármálaráðherra — frú forseti, hæstv. utanríkisráðherra er búinn að vera svo lengi fjármálaráðherra að manni vefst tunga um tönn — en það er hæstv. utanríkisráðherra sem þarf að svara fyrir það hvers vegna Mannréttindaskrifstofa Íslands er sett út af sakramentinu á þeim nótum sem hér hefur verið deilt um í þessum sal oftar en einu sinni. Spurning mín til hæstv. ráðherra er þessi: Er ekki hægt að leiðrétta þessi mistök sem gerð voru á síðustu fjárlögum og er ekki hæstv. utanríkisráðherra tilbúinn til að koma aftur af stað sambandi milli Mannréttindaskrifstofu Íslands og íslenskra stjórnvalda?
Þegar við horfum upp á þær hörmungar sem fólk þarf að þola í veröldinni vegna mannréttindabrota finnst mér við ekki geta haldið svo linkulega á málum og við gerum. Mér finnst við ekki geta annað en staðið virkilega vel við bakið á Mannréttindaskrifstofu Íslands sem hefur opið samband við mannréttindasamtök vítt og breitt um veröldina, er í samstarfi við sambærilegar stofnanir úti í heimi, en hefur nú verið gert ókleift að sinna því starfi. Ef við bara stiklum hér á stóru varðandi þá punkta sem mannréttindasamtökin Amnesty International á Íslandi gáfu út í sumar — þetta er starfsskýrsla þeirra fyrir 2004 — þá sjáum við að í 59 löndum var fólk dæmt til dauða árið 2004. Höft voru lögð á tjáningar- og fundafrelsi í a.m.k. 79 löndum. Í Evrópu hefur mannréttindum verið fórnað í nafni stríðsins gegn hryðjuverkum. Ríkisstjórnir í Evrópu hafa frekar lagt höft og hindranir á flóttafólk en að vernda það. Í Afganistan voru margar konur fangelsaðar fyrir að strjúka að heiman eða stunda kynlíf utan hjónabands. Níu Finnar voru fangelsaðir fyrir að neita að ganga í herþjónustu. Ísraelsher drap meira en 700 Palestínumenn, þar af 150 börn og vopnaðir hópar Palestínumanna drápu 109 Ísraela, þar af átta börn. Í Mjanmar voru meira en 1.300 samviskufangar og sífellt er verið að fangelsa fleiri vegna netnotkunar t.d. í Kína og Víetnam. Í löndum Afríku er eyðnismituðu fólki oft neitað um læknisaðstoð og 159 manns voru tekin af lífi í Íran og a.m.k. tíu voru undir 18 ára aldri.
Frú forseti. Hér er einungis stiklað á stóru og nefndir örfáir punktar úr ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International á Íslandi sem eins og ég segi var gefin út og kynnt í sumar. En þetta sýnir okkur auðvitað svo ekki verður um villst að mannréttindabrot eru framin vítt og breitt um veröldina. Eftir því sem Amnesty segir eru þau með upplýsingar frá um 180 löndum. Ég held því að engin ástæða sé til annars en að íslensk stjórnvöld haldi uppi rækilegum stuðningi við stofnun á borð við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Ég held að hæstv. utanríkisráðherra Geir Haarde, sem er nýlega tekinn við því embætti, hljóti að verða að segja þingheimi hér hver hans sjónarmið eru í þessum efnum.
Af því að ég nefndi Afríku þá langar mig til þess að segja að það er ákveðið fagnaðarefni að Ellen Johnson-Sirleaf skuli nú vera orðinn forseti í heimalandi sínu. Ellen Johnson-Sirleaf var önnur af tveimur konum sem gerðu skýrslu UNIFEM um konur og stríð. Þetta segir okkur að við eigum kannski von í því að stjórnarfar og stjórnarhættir í Afríku geti breyst úr því að sýnt hefur verið fram á það í kosningum á borð við þær sem fóru fram í Líberíu að fólk skuli kjósa hana, róttæka konu, róttækan femínista, sem forseta. Þetta sýnir okkur að kannski er von á einhverjum breytingum í Afríkulöndunum, áherslubreytingum í þeim efnum að betri nýting fjármuna verða sett á dagskrá, að hægt verði að koma í veg fyrir spillingu, alla vega að einhverju leyti. Einnig geri ég ráð fyrir að málefni kvenna og barna verði sett ofar á dagskrána ef það næst að fá fleiri konur sem lýðræðislega kjörna forseta í Afríkulöndum.
Eitt af þeim atriðum sem hæstv. utanríkisráðherra nefndi í ræðu sinni og fleiri þingmenn hafa minnst hér á eru friðargæslumálin. Ég átti í febrúar orðastað hér við hæstv. fyrrum utanríkisráðherra Davíð Oddsson út af áherslu Íslendinga í friðargæslumálum. Ég er þeirrar skoðunar að við höfum verið að hervæða friðargæsluna okkar að algerlega af tilefnislausu og að við séum að svíkja sjálf okkur og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, þ.e. ályktun nr. 1325, með þessari áherslu og áherslubreytingu sem orðið hefur því það er alveg ljóst að konum hefur verið að fækka, sem sagt hlutur kvenna í verkefnum friðargæslunnar hefur minnkað á undanförnum árum. Hann fór niður í 24% árið 2003 og er kominn niður í 14% árið 2004.
Hæstv. fyrrum utanríkisráðherra Davíð Oddsson gaf mér tilefni til þess að ætla að hann mundi gera eitthvað í þessu máli og hann mundi ætla að skoða þessar áherslubreytingar því að hann sagði í þingræðu að ályktun öryggisráðsins nr. 1325 sem fjallar um þessi mál sé athyglisverð og hann var í raun og veru sammála mér um mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld fylgdu ályktuninni eftir. Hann virtist líka sammála mér í því að við þyrftum að skoða hlut kvenna í íslensku friðargæslunni þannig að hann lýsti sig í sjálfu sér sammála sjónarmiðum framkvæmdastýru UNIFEM á Íslandi sem hefur gefið út rannsóknarskýrslu um þessi mál. Ég vil fá að heyra það hjá hæstv. ráðherra Geir Haarde hvort þessi sjónarmið eigi upp á pallborðið hjá honum, hvort hann komi til með að skoða þessa áherslu í friðargæslunni með tilliti til þess á hvern hátt við höfum fækkað konum í friðargæslunni og breytt áherslunum þannig að nú er starf friðargæslunnar ekki lengur fýsilegt fyrir konur. Færri hjúkrunarfræðingar, færri læknar og færri sem starfa beinlínis að mannúðarmálum koma að starfi friðargæslunnar með þeim áherslum sem hafa verið reknar. Ég tel verulega þörf á breytingum hér og treysti því að hæstv. utanríkisráðherra sýni okkur á sín spil í þeim efnum.
Eitt þeirra atriða sem hæstv. ráðherra nefnir í ræðu sinni varðar fiskveiðar og stjórn fiskveiða á úthafinu. Hann segir í ræðu sinni að fyrir ári hafi tekist að koma í veg fyrir að tillaga um hnattrænt bann við botnvörpuveiðum á úthafinu næði fram að ganga og að hægt hafi verið að beina málinu í réttan farveg, þ.e. að hvetja ríki og svæðisbundnar fiskveiðistofnanir eftir því sem við ætti til þess að bæta stjórn botnfiskveiða með sérstöku tilliti til verndunar viðkvæmra vistkerfa hafsins.
Hæstv. forseti. Ég tel fullt tilefni til efni til að Íslendingar fylgi þessum málum afar vel eftir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Mig langar til að vitna í bréf sem Náttúruverndarsamtök Íslands skrifuðu íslenskum stjórnvöldum fyrr á þessu ári þar sem þau skoruðu á íslensk stjórnvöld að greiða atkvæði með tímabundnu alþjóðlegu banni við botnvörpuveiðum svo takast mætti að forða einstöku lífríki djúphafssvæða frá óafturkræfri eyðileggingu því á meðan bannið væri í gildi gætu farið fram vísindalegar rannsóknir á þessum svæðum.
Nú er það svo, virðulegi forseti, að vistkerfi úthafanna er afskaplega lítið rannsakað. Við vitum af kóralrifjum í kaldsjó og neðansjávarfjöllum sem rísa jafnvel allt upp í þúsund metra frá sjávarbotninum. Við vitum að þetta landslag myndar afskaplega mikilvægt vistkerfi með gríðarlegri tegundaauðgi og er uppeldisstöðvar fyrir nytjategundir. Þessi svæði hafa jafnvel verið nefnd regnskógar hafsins. Það er vitað að þau eru svo viðkvæm vegna þess hve vöxtur þeirra er hægur og endurnýjun þeirra hæg.
Ég tel að íslensk stjórnvöld þurfi að beita sér í þessum málum. Þau eiga að ganga fram fyrir skjöldu sem verndarsinnar í ljósi þess hvernig við höfum reynt, í öllu falli í orði kveðnu, að stjórna fiskveiðum okkar á þeim nótum að við séum um leið að vernda lífríkið. Ég tel því fulla ástæðu til þess hér að hæstv. ráðherra setji einhvern veginn annan tón í ræðu sína þegar hann fjallar um þetta því mér sýnist á ræðunni, að í orði kveðnu sé hann bara á móti því að samþykkt sé tillaga hjá Sameinuðu þjóðunum um hnattrænt bann við botnvörpuveiðum á úthafinu. Ég þykist þó vita að Íslendingar séu að taka einhvern þátt í þeim umræðum sem eiga sér stað á þessum vettvangi, að einhverjar ályktunartillögur muni vera í farvatninu. Ég vona sannarlega að Íslendingar geti staðið með varúðarreglunni í Ríó-yfirlýsingunni og styðji það að sett verði tímabundið bann eða einhverjar aðgerðir í gang sem tryggja að stjórnlausar veiðar á úthafinu verði stöðvaðar. Það hlýtur að leiða af sjálfu sér að strandríki sem vernda lögsögu sína hljóta líka að verða á endanum að beita sér fyrir vernd lífríkis sem er fyrir utan lögsögu þeirra. Núna virðist hættan vera mest á úthafinu, virðulegur forseti, eftir því sem erfiðara hefur reynst að halda við nytjastofnum innan lögsögu strandríkjanna.
Hæstv. ráðherra ræðir örlítið um orkumálin. Hann fellur að sjálfsögðu á prófinu þegar hann talar um sjálfbæra orku því að auðvitað er engin orka sjálfbær. Hins vegar getur orkunýting verið sjálfbær. Þetta minnir á ummæli hæstv. forsætisráðherra þegar hann sagði að við Íslendingar værum afskaplega gæfusöm þjóð því við ættum svo mikið af sjálfbærum auðlindum. Nú held ég að þessir hæstv. ráðherrar verði að fara að læra hvað hugtakið sjálfbær þróun þýðir og hvað það þýðir að vera sjálfbær. Það er nýtingin sem þarf að vera sjálfbær. Auðvitað fagna ég því að hæstv. ráðherra skuli hafa áhyggjur af því að orkuforði veraldarinnar fari þverrandi. Hann hefði svo sem að mínu mati mátt kveða mun fastar að orði. Svo er hann á villigötum þegar hann heldur því fram í ræðu sinni að íslensk stjórnvöld sýni einhverja viðleitni með því að auka hér enn frekar hlut endurnýjanlegrar orku. Hann er náttúrlega að fjalla öðrum þræði um Kárahnjúkavirkjun sem við vitum að er ekki að framleiða endurnýjanlega orku. Því máli mínu til staðfestingar vil ég benda hæstv. ráðherra á að kynna sér niðurstöður náttúruverndarsamtakanna World Wide Fund for Nature sem fyrir örfáum dögum kynntu, má segja, svartan lista yfir þær stórvirkjanir sem verið er að reisa í veröldinni núna um þessar mundir þar sem ekki er farið að sjálfsögðum umhverfiskröfum. Ein af þeim virkjunum er Kárahnjúkavirkjun. Ég held því að hæstv. ráðherra þurfi að læra svolítið um mælikvarðana og viðurkenna að þó að Íslendingar vilji í orði kveðnu standa sig vel í sjálfbærri þróun þá þurfa þeir að taka örlítið betur til skoðunar sinn eigin bakgarð.
Ég sé að tími minn er útrunninn, hæstv. forseti, þannig að ég verð að flytja aðra ræðu til þess að halda áfram vangaveltum mínum um þessi orð hæstv. utanríkisráðherra.