Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Það er náttúrlega alveg kostulegt að hlusta á þetta. Bara svo að ég lesi aðeins úr skýrslunni, með leyfi forseta. Hér segir:
„Forráðamenn Evrópusambandsins hafa aldrei gefið neinar vísbendingar um að samkomulag gæti orðið um slíka skilmála“ — þ.e. skilmála um að við mundum ekki undirgangast sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Ef hv. þingmaður segir að við getum undirgengist hana eru það auðvitað miklar fréttir. Ég get ekki túlkað þetta öðruvísi en að hv. þingmaður hafi haldið því fram. Það eru hin pólitísku tíðindi.
Varðandi atvinnustigið, vinnumarkaðinn og aldurssamsetninguna er það þetta sem menn takast á um í Evrópusambandinu alla daga. Um það gengur umræðan um stjórnarskrána, um samrunaferlið, hvort eigi að dýpka þetta o.s.frv. Að halda því hér fram að þetta hafi ekki áhrif á þjóðir Evrópusambandsins er alveg gersamlega fráleitt. Ég vona að hv. þingmaður hafi eitthvað mistalað sig þegar hann hélt slíku fram því það liggur alveg fyrir að þetta er orðinn vandi allra sem í Evrópusambandinu eru.