Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Ég tel, frú forseti, að við mundum í engu missa nokkurs við varðandi þessar heimildir. Ég tel líka að útrásarþrótturinn í íslensku atvinnulífi mundi gera það að verkum að við gætum notfært okkur töluvert vel þá möguleika sem felast í 20 fiskveiðisamningum Evrópusambandsins við aðrar þjóðir þannig að ég ber engan kvíðboga varðandi þetta.
Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það mun verða þrýstingur af hálfu þessara þjóða til að komast inn þegar við semjum um aðild. En ég tel að það séu engin rök til að láta undan honum, hvorki fyrir okkur né Evrópusambandið. Ég er ekki hræddur við það en það kæmi í ljós í samningum.
Hitt er svo annað mál og ég skal fúslega gangast við því líka að ég tel að ekki yrði undan því vikist, og ég er heldur ekki á móti því, ef við gengjum í Evrópusambandið að erlend fyrirtæki og erlendir aðilar fengju að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. En það er skoðun sem af minni hálfu hefur legið fyrir árum saman.