132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:53]
Hlusta

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrslu hans. Þar er farið víða og kannski eðlilegt að ekki sé ítarleg umfjöllun um eitt einstakt mál eins og oft hefur verið, þar sem hæstv. utanríkisráðherra hefur skamma hríð verið í embætti. En fyrirrennarar hans hafa oft á tíðum helgað þessa umræðu að mestu einu málefni og ég held að það hafi verið ágætur siður og vænti þess að honum verði viðhaldið þannig að umræðan megi vera sem markvissust. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá málþing um utanríkismálin í þinginu með þeim hætti sem hér hefur verið. Mikilvægt vegna þess að til lengri tíma litið í alþjóðamálum er auðvitað ýmislegt sem gefur okkur sérstaka ástæðu til að leggja ríka áherslu á þau. Breytingar í umhverfi okkar og í heiminum yfir höfuð gefa okkur tilefni til þess. Við erum þannig ekki lengur miðpunktur í varnar- og öryggismálum eins og áður var. Bandaríkin hafa skilgreint okkur út af heimavarnarsvæði sínu og þær átakalínur hafa sem betur fer, vil ég leyfa mér að segja, færst til annarra heimshluta. Í hinu norræna samstarfi dregur auðvitað nokkuð úr því þar sem aukin áhersla þeirra er á samstarf til austurs, við Eystrasaltslöndin og inn í Evrópu. Þess utan höfum við á hinum evrópska vettvangi tekið ákvörðun um að vera ekki hluti af hinu pólitíska samstarfi Evrópuþjóðanna. Þegar nú bætist við að þungamiðjan í alþjóðaviðskiptunum er líka að færast, með því að Kína er að rísa sem mikið efnahagsveldi, og viðskiptaþungamiðja veraldarinnar því að færast nokkuð frá því sem áður var, þá gefur allt þetta okkur tilefni til lengri tíma að leggja enn ríkari áherslu en áður á þátttöku okkar í alþjóðamálum og alþjóðlegt samstarf. Þetta hlýtur líka að vekja okkur til umhugsunar um það hvort sá tími sé ekki skammt undan að við þurfum að taka ákvarðanir um virkari þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og þá auðvitað ekki síst á vettvangi Evrópuríkjanna í Evrópusambandinu.

Í gær var rætt við hæstv. utanríkisráðherra um meinta fangaflutninga um íslenska lögsögu. Það virðist enginn áhugi vera hjá ráðherranum eða ríkisstjórninni að rannsaka það mál og ég held að ekki sé ástæða til að orðlengja þá umræðu, það hafi allt komið fram í henni sem mun koma fram. Ég get hér einvörðungu tekið undir hvert orð í ræðu 1. þm. þingmanns Reykjavíkurkjördæmis norður, Össurar Skarphéðinssonar, um það efni.

En það voru kannski einkum þrjú atriði sem ég vildi spyrja hæstv. ráðherra um. Í fyrsta lagi kemur fram í skýrslu hans ákaflega lofsamleg umfjöllun um ríkisstjórn þá sem nú situr í Írak. Nú vil ég trúa því að einhverjir dagar hljóti að vera síðan sá texti var skrifaður því nú er það komið fram að á vegum þessarar ríkisstjórnar og innanríkisráðuneytisins, virðist hafa verið rekið ógeðslegt fangelsi í Bagdad, en það var afhjúpað nú í vikunni. Ég hlýt að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort það veki ekki hjá honum efasemdir um þau stjórnvöld sem nú ríkja í Írak og hvort hann fordæmi ekki slíka meðferð á fólki þótt hann sé áhugalítill um að rannsaka meinta fangaflutninga um lögsögu okkar. En rekstur þessa fangelsis liggur þó fyrir sem staðreynd sem ráðherrann getur ekki neitað og hlýtur að vera á okkar ábyrgð því innrásin í Írak var gerð í okkar nafni. Við lýstum sérstökum stuðningi við þær aðgerðir og áætlun alla og sá stuðningur var skilyrðislaus. Hann felur þess vegna í sér ábyrgð á öllu því sem slíkri innrás fylgir.

Í öðru lagi vildi ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra um það sem fram kemur í viðræðum við Evrópusambandið um búvörur. Um áherslur Íslendinga í þeirri umræðu að fá aukið aðgengi fyrir íslenskt lambakjöt á mörkuðum Evrópusambandsins og spyrja hæstv. ráðherra hvort af hálfu Evrópusambandsins séu svipaðar áherslur uppi um að fá greiðari aðgang að íslenskum mörkuðum fyrir einhverjar af sínum búvörum. Hverjar þær eru, ef svo er, og hverjar undirtektir hans hafi verið í því efni.

Í þriðja lagi vildi ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra um málefni Tævans. Eins og við þekkjum er nú uppi í heiminum sú vá sem er fuglaflensan og áhyggjur manna af því að hún geti þróast með alvarlegum hætti. Stjórnvöld á Tævan hafa vakið athygli á því að sú einangrunarstefna sem Kína hefur rekið gagnvart þeim hafi m.a. leitt til þess að þeir eigi ekki aðild að Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Þar af leiðandi sé Tævan ekki hluti af hinu alþjóðlega viðbragðskerfi í heilbrigðismálum ef heimsfaraldur rís. Og þó séu hafnir þeirra meðal þeirra fjölförnustu í heiminum og svo nálægt þeim svæðum sem fuglaflensan hefur geisað að það hlýtur að teljast ákaflega mikilvægt að þeir séu hluti af hinu alþjóðlega viðbragðskerfi. Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort við höfum með formlegum hætti tjáð okkur um þessa stöðu og útilokun Tævans frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Og sömuleiðis hvort það hafi komið til umræðu að Ísland hefði skrifstofuskipti við þetta litla ríki í austri, eins og títt er um ýmis lönd í Evrópu. Ég hygg að flest NATO-ríkja hafi einhver slík samskipti við Tævan, menningarskrifstofur á báða bóga, og langar til að vita hvort slíkt hafi komið upp í viðræðum íslenskra stjórnvalda við Tævan. Ég vil heyra hver afstaða hæstv. utanríkisráðherra sé. Við hljótum auðvitað að hlusta nokkuð vel á umkvartanir ríkis sem er að berjast fyrir sjálfstæði sínu við stórt ríki sem neitar að viðurkenna það, þó ekki væri nema vegna sögu okkar sjálfra.

Ég vildi sem sagt fá að inna hæstv. utanríkisráðherra eftir afstöðu hans til eftirtalinna þriggja atriða við þessa umræðu: Afstöðu til hins ógeðfellda fangelsis sem nú er fundið á vegum innanríkisráðuneytisins í Írak þar í landi og þeirrar starfsemi sem þar hefur farið fram. Í öðru lagi um búvöruviðræður við Evrópusambandið og í þriðja lagi um afstöðuna til Tævans, bæði hvað varðar samskipti Íslands við það ríki og aðild þess ríkis að Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.