132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:43]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að menn verði að halda sig dálítið við málefnið sem hér er til umræðu í stað þess að rjúka í svona skætingsummæli eins og komu fram hjá hv. þingmanni í síðustu ræðu hans. Ég held að menn vinni ekkert með pólitískri umræðu um málefni sem fer inn á þær brautir.

Ég hef leyft mér hér, virðulegi forseti, að rekja stefnu Framsóknarflokksins svo að menn velkist ekki í neinum vafa um það hver hún er. Það er alveg ljóst og menn geta flett því upp í skjölum og samþykktum flokksins að grundvöllurinn að stefnu hans gagnvart Evrópu er að vinna á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Það verður ekki fyrr en að menn meta þann samning ekki lengur fullnægjandi sem menn verða sammála um að taka til umræðu aðra kosti. Enginn hefur lagt fram það mat að slíkt sé uppi og meðan höfum við þá stefnu að vinna á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og þeirra samþykkta sem við höfum gert sem eru þær, eins og ég kom að áðan, að skilgreina samningsmarkmið þannig að menn viti á hverjum tíma hverjir kostirnir og gallarnir eru og hvað það er sem við viljum sækjast eftir í samskiptum okkar við Evrópulönd. Þannig getum við alltaf borið það saman við þá stöðu sem við erum í. En það liggur alveg ljóst fyrir að áður en menn fara að undirbúa aðildarviðræður þarf að fá sérstaka samþykkt í flokknum fyrir því og áður en menn taka síðan ákvörðun um að fara í aðildarviðræður þarf að kalla saman flokksþing. Þetta liggur fyrir í samþykktum flokksins.

Ég held að menn eigi ekkert að deila um þetta. Það liggur bara svona, virðulegur forseti, að staðan er ákaflega skýr í þessum efnum. Mér finnst eins og hv. þm. Jóni Bjarnasyni séu það nokkur vonbrigði en það verður hann auðvitað að eiga við sig.