Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Mér finnst munurinn á stefnu Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar í þessum málum vera sá að báðir flokkarnir hafa ákveðið að skilgreina samningsmarkmið — annar flokkurinn í einhverjum vísindalegum tilgangi, hinn í þeim yfirlýsta tilgangi að nýta sér þann möguleika að sækja um aðild að Evrópusambandinu, eftir það þurfi að leggja niðurstöðuna fyrir flokkinn og síðan fyrir þjóðina. Í slíku ferli kemur auðvitað fram hvort ávinningur er að aðild eða ekki.
Það vita allir að við erum nánast aukaaðilar að Evrópusambandinu. Við göngumst undir stóran hluta af reglum sambandsins en erum utan við það og höfum ekki áhrif með þeim hætti sem þeir sem eru innan þess hafa. Það er því full ástæða til að menn skoði hlutina í alvöru en ekki eingöngu í einhverjum vísindalegum tilgangi eins og hv. þingmaður er að lýsa. Ég er reyndar sannfærður um að það er eins með Framsóknarflokkinn í þessu máli og verið hefur í svo mörgum öðrum málum að hann er í tvennu lagi hvað viljann varðar. En flokksforustan verður ævinlega ofan á að lokum og það eigum við eftir að sjá í þessu máli eins og öllum öðrum.
Við vitum það t.d. að á sínum tíma studdi flokksforustan aðild að NATO og það að herinn væri hér en meiri hluti flokksmanna, eða svo til, var í Samtökum hernámsandstæðinga og studdi það að herinn færi úr landi. Þannig hefur þetta verið. Helmingurinn af flokknum var með því að samþykkja EES-samninginn en helmingurinn var á móti því, þá er ég að tala um þingflokkinn. Það hvarflar að mér að flokkurinn sé álíka staddur í þessu máli og þeim málum sem ég nefndi.