132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:21]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Þessi umræða hefur staðið eðlilega í allan dag enda er þetta eitt af stærstu málum þingsins, þ.e. utanríkismálin og skýrsla utanríkisráðherra. Nú eru líka tímamót. Þetta er fyrsta skýrsla núverandi utanríkisráðherra um utanríkismál. Umræður hafa verið hér miklar og góðar og margt má ræða enn, enda eru enn, að ég vissi síðast, sex á mælendaskrá. Ekki var gert ráð fyrir kvöldfundi enda er kannski engin sérstök ástæða til þess. En þeir sex a.m.k. sem nú eru á mælendaskrá munu þurfa sinn tíma. Það er náttúrlega eðlilegt að umræðum um utanríkismál ljúki í kvöld sé þess nokkur kostur nema upp komi einhverjar viðbótarástæður. Alla vega tel ég það.

Eftir er á dagskránni annað mál sem er líka stórmál. Mér finnst reyndar óeðlilegt, frú forseti, að hengja það aftan í jafnmikilsvert mál og skýrslu utanríkisráðherra. Mér finnst að sýna eigi utanríkismálunum þann heiður að þau séu eitt mála á dagskrá þegar þau eru rædd. Þess vegna leyfi ég mér að spyrja hæstv. forseta hvernig fyrirhugað sé að haga þinghaldinu næstu mínútur og klukkutíma, hvort það sé ætlun forseta að ljúka þeirri umræðu sem nú stendur yfir og hvað forseti hyggist frekar með dagskrána að öðru leyti. Ég bendi á að styttast fer í að það megi skilgreina að komið sé kvöld. En það hefur ekki verið boðaður kvöldfundur. Mér finnst rétt að skýrsla utanríkisráðherra fái fullkominn sess og njóti þeirrar virðingar sem slík skýrsla á að hafa og umræður um hana í þingsal og tel ástæðulaust að setja fleiri mál á dagskrá. Ég spyr forseta hvort hún muni ekki sjá til þess að málið sem er síðar á dagskránni verði tekið út og þessari umræðu um utanríkismál lokið með virðulegum hætti.