132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:23]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Samkvæmt dagskrá þessa þingfundar, sem legið hefur fyrir síðan þingfundur hófst í morgun, er gert ráð fyrir að að lokinni þessari umræðu verði tekið fyrir 2. dagskrármál. Forseti gerir þá grein fyrir því núna að áfram verður haldið enn um sinn með umræðu um utanríkismál sem hófst kl. 10.30 í morgun og eru ekki fyrirhugaðar breytingar á því.