Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka þeim sem tekið hafa þátt í umræðunni fyrir framlag þeirra til hennar í dag þó að einhverjir eigi kannski enn eftir að taka til máls. Ég held að það megi segja um umræðuna og þetta umræðuform að ef til vill mætti það sæta tiltekinni endurskoðun. Hér er talað um mjög mörg mál í einu og það má vel vera að við ættum að reyna að finna okkur form í þinginu þar sem við gætum tekið fyrir með skýrari og afmarkaðri hætti tiltekna þætti og þá í styttra máli en við umræðu sem þessa.
Ég lagði áherslu á það í ræðu minni að utanríkisstefnan markast af tvennu. Hún markast í fyrsta lagi af því að gæta íslenskra hagsmuna í hvívetna í samskiptum við önnur ríki og í samskiptum við alþjóðlegar stofnanir. Við gætum hagsmuna okkar með samningum við önnur lönd og með annars konar fyrirsvari þar sem í hlut eiga hagsmunir íslenska ríkisins eða íslenskra aðila, fyrirtækja og einstaklinga. Eitt slíkt dæmi hefur borið á góma í umræðunum í dag, það eru samningar um síldina sem því miður hafa ekki náðst en er dæmigert verkefni utanríkisþjónustunnar og í þessu tilfelli sjávarútvegsráðuneytisins að vinna að.
Hitt stóra málið á vettvangi utanríkisstefnunnar er þátttaka Íslands í alþjóðamálum almennt, sem ekki þurfa endilega að vera tengd með beinum hætti við íslenska hagsmuni en eru hluti af því að vera ábyrgur borgari í samfélagi þjóðanna, ábyrgt ríki í samfélagi þjóðanna. Þar koma við sögu verkefni eins og friðargæsla, þróunaraðstoð og margs konar slík málefni og framboð Íslands til öryggisráðsins er auðvitað af þeim toga. Við sjáum ekki fyrir okkur að við munum taka þar sæti eingöngu til að gæta okkar eigin prívathagsmuna.
Hvað varðar hagsmunagæsluna og fyrri þáttinn sem ég hef nefnt í utanríkisstefnunni hefur að sjálfsögðu margt í því efni borið á góma í þessari umræðu í framhaldi af ræðu minni. Síldin er þar aðeins eitt atriði. Margs konar viðskiptahagsmunir aðrir hafa auðvitað verið hér til umræðu og eru eðlilegt viðfangsefni utanríkismálanna. Ég gat um þá viðskiptasamninga sem við höfum verið að undirbúa og sem í gangi hafa verið. Spurt var um fríverslunarsamning EFTA og Kanada sem því miður hefur ekki náðst vegna þess að Kanadamenn hafa skyndilega að því er virðist misst áhugann á því máli. Það er síðan athyglisverð spurning hvort til greina kæmi að gera samning milli Íslands og Kanada. Ef Kanadamenn hafa áhuga á því held ég að það gæti verið athugandi, en ég leyfi mér að efast um að þeir hafi það frekar en Bandaríkjamenn hafa haft á undanförnum árum. En viðskiptaviðræður af ýmsu tagi eru mikilvægt viðfangsefni fyrir okkur í gæslu hagsmuna okkar.
Þessu nátengt er Evrópuumræðan þar sem um er að tefla með hvaða hætti við gætum best okkar eigin hagsmuna gagnvart Evrópusambandinu. Ég verð að segja að mér þótti málflutningur hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar um það atriði mjög sannfærandi í dag hvað varðar Evrópusambandið sjálft. Ég er honum sammála um að það þýðir ekkert að ætla að banka þar á dyr og segja: Við ætlum að sjá hvað við getum fengið hjá ykkur og samið ef okkur líkar það. Þetta er spurning um að ganga annaðhvort inn eða vera fyrir utan.
Hins vegar tel ég — og þar er ég honum ósammála — að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hafi nýst okkur afar vel og hafi þróast með miklum ágætum. Einn liður í þeirri þróun er að við Íslendingar erum núna, á grundvelli ákvarðana sem ríkisstjórnin hefur tekið, að hefja viðræður við Evrópusambandið um að taka upp löggjöf Evrópusambandsins um dýraheilbrigði í ríkari mæli en núverandi ákvæði EES-samningsins gerðu ráð fyrir. Á þetta hafa nokkrir menn drepið hér. Þetta mun liðka fyrir viðskiptum með sjávarafurðir okkar á Evrópumarkaði en á móti verðum við að fallast á löggjöf þeirra um þetta atriði, en munum þó ekki fallast á innflutning á lifandi dýrum. Hér er um að ræða ákveðið hagsmunamat þar sem hagsmunir okkar í sjávarútvegi eru meiri en hagsmunirnir af því að taka ekki upp þessa tilteknu löggjöf um dýraheilbrigði sem ég er fullviss um að okkur er fyllilega óhætt að gera þó að við verðum að sjálfsögðu að standa vaktina og í vörninni gagnvart öllum þeim dýrasjúkdómum sem eru til annars staðar en ekki hérlendis. Þetta er sem sé annað dæmi um mál þar sem hagsmunagæsla og málafylgja af okkar hálfu er í fullum gangi.
Enn annað dæmi sem hefur að sjálfsögðu líka verið rætt um eru varnarmálin. Þar erum við að gæta okkar hagsmuna með tilliti til varna landsins og öryggismála hér á landi. Þau mál eru í ákveðnum farvegi en það vill þannig til að fleiri lönd eiga hagsmuni af því að farsæl niðurstaða náist heldur en eingöngu Ísland og Bandaríkin vegna þess að varnarsamningurinn við Bandaríkin er gerður innan vébanda Norður-Atlantshafssamningsins, ef svo mætti segja. Hann er gerður á grundvelli samningsins um Atlantshafsbandalagið og það hefur alltaf verið litið þannig á að hann væri líka í þágu þeirra ríkja sem þar eiga aðild, annarra en Íslands og Bandaríkjanna.
Ég átti viðræður nýlega við utanríkisráðherra Noregs og við ræddum þessi mál. Hann hefur að sjálfsögðu mikinn áhuga á því og vill fylgjast með því alveg eins og varnarmálaráðherra Noregs, sem ég hef líka rætt um þetta við. Það liggur alveg ljóst fyrir að allir sem eiga hagsmuna að gæta á Norður-Atlantshafi hafa mikinn áhuga á því að fylgjast með og áhyggjur af því ef Ísland og svæðið í kringum það verður skilið eftir varnarlaust, sem auðvitað er ekki meiningin. Ég leyfi mér að fullyrða, til þess að ljúka þessum þætti, að allir aðilar í bandaríska stjórnkerfinu — sem stundum hafa þó ólíkar meiningar, eins og við vitum, og erfitt getur verið að henda reiður á vegna þess að þar togast líka á innbyrðis hagsmunir í stjórnkerfinu — hafa fullan hug á því að standa við samninginn og ætla sér ekki annað en að virða varnarsamninginn við Ísland þó að ef til vill kunni að vera mismunandi skoðanir á því hvernig það sé best gert.
Varðandi framlag Íslands til alþjóðamála og stöðu slíkra mála almennt vildi ég drepa hér örlítið á friðargæsluna í lokaorðum mínum. Ég hef reyndar gert grein fyrir þeim málum í framsögunni en vil aðeins bæta því við, vegna þess sem fram kom af hálfu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, að það er ekki nákvæmt að halda því fram að Norðmenn séu að draga sig að öllu leyti til baka úr friðargæslu í Afganistan. Þeir eru að draga sig út úr tilteknum þætti í suðurhluta landsins, draga sig út úr þeim þætti sem kallaður er „Enduring Freedom“ á ensku undir forustu Bandaríkjamanna en þeir eru þvert á móti að efla sitt lið annars staðar í landinu, t.d. í Norður-Afganistan, og eru að senda þangað fjórar orrustuþotur, F16, til þess að efla varnir sinna manna sem þar eru.
Ég ræddi þetta í gær við norska varnarmálaráðherrann í síma og greindi henni frá því hver okkar niðurstaða væri hvað varðar okkar liðsafla, það teymi sem þar er, og hún hefur fullan skilning á því, og lýsti því að norsk stjórnvöld hefðu fullan skilning á því, að við tækjum þá ákvörðun vegna öryggis okkar eigin manna að draga þá út af þessu svæði. Því er auðvitað ekki saman að jafna að vera með herafla á staðnum og vera með borgaralegt teymi, eins og við erum með, sem hefur ekki þá hernaðarþjálfun sem þarf að vera þegar stríðsherrar eru annars vegar og hættumatið hefur breyst eins og þarna er um að tefla. Hættumatið hefur breyst, það er þess vegna sem við ákveðum að draga okkar menn heim úr þessu verkefni. En við munum að sjálfsögðu finna önnur verkefni til þess að liðsinna í þessu stríðshrjáða landi. Í vesturhlutanum aftur á móti er meiningin að halda áfram með þeim hætti sem áður var ráðgert á meðan ástandið er óbreytt hvað hættumatið varðar á þeim slóðum.
Það var drepið á það að hlutur kvenna í friðargæslunni væri ekki nægilega mikill. Það má út af fyrir sig segja að hann gæti og ætti að vera meiri og það verður unnið að því. Hins vegar tel ég ekki að við getum valið okkur verkefni innan friðargæslunnar eingöngu út frá því sjónarmiði að þar sé stór hlutur kvenna. Við tökum þátt í UNIFEM-verkefni í Kosovo, eins og ég gat um, og það er sjálfsagt að reyna að gera meira á því sviði, sérstaklega þar sem hægt er að bæta stöðu kvenna og barna. Um það eru áreiðanlega allir sammála.
Það hefur verið drepið hér á fjöldamörg önnur atriði eins og gengur. Það er erfitt að henda reiður á þeim öllum saman. Ég tel að við getum sem ríki og sem þjóðþing hér í þessum sal verið býsna ánægð með okkar utanríkisþjónustu þó að þær raddir heyrist alltaf að í hana fari of miklir peningar og nýta megi þá betur. Það er sjálfsagt að nýta það fjármagn eins vel og hægt er sem í utanríkisþjónustuna rennur. En við komumst hins vegar ekki hjá því að halda uppi öflugri hagsmunagæslu, það er eitt af verkefnum sjálfstæðs ríkis að gera það og hvað mundu menn segja ef við værum ekki með öflugt fyrirsvar þar sem hagsmunir okkar eru í húfi, hvað mundu menn segja við því? Á hinn bóginn er það líka metnaðarmál nú á tímum fyrir sjálfstæða þjóð að geta lagt fram til lausnar alþjóðlegra vandamála og verið með ábyrgt framlag í þeim efnum. Stundum fer þetta saman, eins og oft á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þar sem verið er að koma reglu á alþjóðleg málefni en þar sem menn eru jafnframt að gæta sinna eigin hagsmuna. Þannig var það auðvitað í hafréttarmálunum að okkar eigin hagsmunir, af því að ná fram okkar kröfum og ásetningi, fóru saman við þá hagsmuni alþjóðasamfélagsins að koma skikki, ef svo mætti segja, á þessi mál.
Það sama á við um botnvörpuveiðarnar sem ég setti hér inn í þessa ræðu nokkrar setningar um og ég tók eftir því að hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir tók eftir því. Ég hygg að við séum ekki ósammála í því máli. Auðvitað þarf að gæta umhverfissjónarmiða hvað hafsbotninn varðar o.s.frv. en það hefur ekki gefið góða raun og er ekki vísir á ábyrga stjórnun eða meðferð mála að ætla að reyna að stýra nýtingu á þessum auðlindum með einhvers konar hnattrænum hætti. Staðbundin stjórnun, eins og við erum með í okkar lögsögu, hefur gefið mjög góða raun. Svæðisbundin stjórnun, þar sem um er að ræða fleiri lönd en eitt sem hagsmunaaðila, hefur líka gefið góða raun. En ég kannast ekki við að hnattræn stjórnun, ef svo mætti kalla það, þó að það sé nú heldur leiðinlegt og óþjált orð, gefi góða raun.
Tökum sem dæmi alþjóðastofnunina um nýtingu á auðlindum í hafsbotninum, sem er sett á laggirnar á grundvelli hafréttarsáttmálans og hefur aðsetur í Jamaíka, ef ég man rétt, vegna þess að hafréttarsáttmálinn var undirritaður þar 1982. Hún skilar ekki miklum árangri, því miður, þó að svo eigi að heita að verðmætin í hafsbotninum eigi að vera eign heimsbyggðarinnar allrar. Ég held að það sé dæmi sem hægt er að taka um það þegar góður ásetningur skilar sér ekki í raun. Það er þetta sem við Íslendingar erum að vara við á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hvað varðar bann við botnvörpuveiðum. Mönnum gengur auðvitað bara gott eitt til, það vantar ekki. En í góðum ásetningi verða mönnum stundum á alls kyns mistök og afglöp og það er það sem við þurfum að passa og gæta að því að við bindum ekki hendur okkar með þeim hætti að við getum ekki stundað hefðbundnar veiðar á okkar miðum vegna þess að velmeinandi menn úti í heimi hafi bannað tiltekin veiðarfæri eða komið hlutum þannig fyrir að þau séu talin óæskileg.
Ég vil svo endurtaka þakkir mínar fyrir þessa umræðu. Mér þykir leitt ef ég hef ekki getað svarað hér öllum spurningum. Það verður þá tækifæri til þess síðar meir, annaðhvort munnlega eða skriflega.