132. löggjafarþing — 24. fundur,  17. nóv. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:56]
Hlusta

utanríkisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sú yfirlýsing var auðvitað bundin við þá atburði sem þá áttu sér stað, átökin í Írak, en þeim er lokið. En hvað sem því líður er ég algjörlega ósammála túlkun hv. þingmanns um að á grundvelli þeirrar yfirlýsingar megi ástunda ólögmætt athæfi í þessum efnum og það er ekki hægt að réttlæta ólögmætt fangaflug, ef það hefur átt sér stað, með þeirri yfirlýsingu. Ég held að það sé rangt hjá þingmanninum að það megi túlka hana svo. Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða þessi fangamál frekar. Það er ekki ólöglegt að flytja fanga milli landa en það er ólöglegt að gera það með þeim hætti að fari í bága við alþjóðasamþykktir um meðferð fanga og það getum við ekki sætt okkur við.