132. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2005.

Lenging fæðingarorlofs.

134. mál
[11:10]
Hlusta

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Þetta mál er mjög brýnt að ræða. Ég held að það sé verkefni okkar allra hér að horfast í augu við að auðvitað hlýtur þróunin að verða sú að lengja fæðingarorlofið.

Frú forseti. Það er ekki sama hvernig að því er staðið. Ég vil benda á að þó að lögin byggi á stöðu fólks á vinnumarkaði þá snúast þessi mál líka um réttindi barnsins, réttindi barns til samvista við foreldra sína. Eins og staðan er núna þá eru réttindi barna einstæðra foreldra minni en réttindi annarra barna. Ég vona að hv þingmenn geri sér allir grein fyrir því. Við hljótum líka að þurfa að taka það til greina þegar við tölum um lengingu fæðingarorlofs.