Áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.
Frú forseti. Á 100. löggjafarþingi, fyrir um einu og hálfu ári, var samþykkt nokkuð metnaðarfull áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára. Í þá áætlun var lögð töluverð vinna í félagsmálanefnd og reynt að ná samstöðu milli stjórnar og stjórnarandstöðu um það mál. Víðtæk samstaða tókst og gerðar voru töluverðar breytingar á þeirri áætlun frá því sem var þegar hún var upphaflega lögð fram af hæstv. félagsmálaráðherra.
Það er mikilvægt að hér sé vel fylgst með því að þessari áætlun sé fylgt eftir. Það mæðir auðvitað mjög á félagsmálaráðherra í því efni þó að áætlunin sé þannig gerð að hvert ráðuneyti hefur sín verkefni að vinna að í þessu sambandi. Áætlunin nær sem sagt til allra ráðuneyta, m.a. með fræðslu um jafnréttismál, hvernig ná eigi jafnrétti á vinnumarkaði, hvernig vinna eigi að jafnréttisáætlun ráðuneytanna, eftirfylgni með framkvæmd áætlunarinnar og ýmsar kannanir áttu að fara fram innan nokkurra ráðuneyta til að meta stöðuna, m.a. í launamálum, og gera úttekt á hvaða árangur hefði orðið af verkefnum undanfarinna ára sem hafa það að markmiði að örva frumkvæði kvenna í atvinnurekstri. Það átti að efla starfsmenntun til að bæta stöðu ófaglærðra kvenna og svo mætti lengi telja og gæti ég, virðulegi forseti, vissulega farið lið fyrir lið í þessa áætlun. En það er ekki nóg að hæstv. ráðherra haldi fast um taumana og sjái til þess að hún komist í framkvæmd heldur kostar það peninga að hrinda henni í framkvæmd.
Það var þannig að nokkur ráðuneyti settu fram tímaáætlun, innan hvaða tímamarka ætti að koma viðkomandi verkefnum í framkvæmd. Í sumum tilvikum voru þau kostnaðargreind en alls ekki í öllum ráðuneytum þannig að sjálfsagt liggur kostnaðurinn við framkvæmdina ekki alveg fyrir. Þar sem reynt var að kostnaðargreina var kostnaður, og aðeins við hluta verkefnanna, ég ítreka það, virðulegi forseti, um 80 millj. kr. og var hann langmestur í heilbrigðisráðuneytinu. Því er nú spurt:
1. Hve mikið fjármagn hefur verið sett til að hrinda í framkvæmd áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 2004? Hvaða áform eru um árlegt fjármagn til verkefna sem tengd eru áætluninni fram til loka hennar árið 2008 og hefur verið gerð markviss áætlun um fjárþörf á tímabilinu?
2. Hvað hefur verið gert til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra kvenna á vinnumarkaðinum, samanber áætlunina frá maí 2004, og hefur verið lagt aukið fjármagn í það verkefni?
3. Hvað líður þeim áformum í áætluninni að ráðuneyti og stofnanir setji sér samræmdar jafnréttisáætlanir fyrir árslok 2005? En það hefur verið mjög mikil brotalöm á undanförnum árum varðandi framkvæmdina á því.
4. Hvað líður úttekt á áhrifum launakerfis ríkisins á launamun kvenna og karla sem taka átti til launa og hvers konar frekari þóknana í samræmi við 2. mgr. 14. gr. jafnréttislaga og hvenær má vænta niðurstöðu?