132. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2005.

Jafnréttisfræðsla fyrir ráðherra og stjórnendur opinberra stofnana.

256. mál
[11:59]
Hlusta

Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það gleður mig að heyra að hæstv. ráðherra jafnréttismála hefur velt fyrir sér hvernig hann getur nálgast samráðherra sína með jafnréttismálin því tilefnin eru ærin. Ég vil minna á niðurstöðu sem kom úr fyrirspurn minni eða utandagskrárumræðu held ég nú að það hafi verið við hæstv. landbúnaðarráðherra á síðasta þingi en þar kom einmitt í ljós að hann stendur sig allra ráðherra verst varðandi jafnréttismál.

Það er líka öllum í fersku minni hvernig gengið var fram hjá hæfri konu við skipan í ráðherraembætti þegar síðasta ríkisstjórn var sett á fót.