Vinnutími á blóðskilunardeild LSH.
Frú forseti. Ég kveð mér hljóðs til að ræða vanda sem er að skapast vegna sparnaðaraðgerða á blóðskilunardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss. Í ályktun FÍH frá 14. nóvember sl. segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yfir áhyggjum af því alvarlega ástandi sem í stefnir varðandi hjúkrunarþjónustu á blóðskilunardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss verði fyrirhugaðar breytingar á vinnutíma hjúkrunarfræðinga látnar ganga fram.
Hjúkrunarþjónusta á blóðskilunardeild er sérfræðiþjónusta við sjúklingahóp sem ekki getur án þjónustunnar verið. Sérþekking og sérhæfing hjúkrunarfræðinganna er slík að allt árið tekur að þjálfa nýja hjúkrunarfræðinga til starfa á deildinni.
Átta af 16 hjúkrunarfræðingum sem starfa á blóðskilunardeild LSH túlka fyrirhugaðar breytingar á vinnutíma sem ígildi uppsagnar á ráðningarsamningi og munu því að óbreyttu hætta störfum um áramót. Öryggi sjúklinga sem háðir eru þjónustu blóðskilunardeildar verður þá stefnt í verulega tvísýnu auk þess sem mikil sérþekking hjúkrunarfræðinganna tapast.“
Frú forseti. Við ræðum hér um blóðskilun nýrnasjúklinga. Blóðskilunarvélin virkar eins og gervinýra og þarf sjúklingur að mæta í hana þrisvar sinnum í viku fjóra tíma í senn til að halda lífi. Vegna sparnaðaraðgerða hefur verið boðuð einhliða breyting á vaktakerfi þannig að hefðbundnar átta klukkustunda vaktir verða styttar sem leiðir af sér að hjúkrunarfræðingurinn þarf að mæta á rúmlega 20 fleiri vaktir á ári til að ljúka vinnuskyldu. Tilgangurinn er sagður vera hagræðing en þetta er eingöngu gert í sparnaðarskyni. Ókostirnir eru aukið álag á sjúklinga og starfsfólk og þýðir m.a. að færri hjúkrunarfræðingar verða á vakt á mesta álagstíma dagsins. Ég spyr:
Eru þessar sparnaðaraðgerðir gerðar með vitund hæstv. heilbrigðisráðherra? Hvað hyggst ráðherra gera til að forða því að hættuástand skapist á blóðskilunardeild LSH um áramótin?